Mikilvægt skref í orkuöryggi Suðurnesja

Veðrið lék við verkamenn á vegum Elnos Iceland.
Veðrið lék við verkamenn á vegum Elnos Iceland. Ljósmynd/Aðsend

Fyrsta mastrið af 86 til­huguðum möstr­um í Suður­nesjalínu 2 var reist í morg­un. Þess­ari nýju raf­orku­línu er ætlað að tryggja aukið orku­ör­yggi á Suður­nesj­um, en sam­kvæmt Landsneti er orku­ör­yggið á Suður­nesj­um „ekki ásætt­an­legt“. Ef allt geng­ur að ósk­um verður Suður­nesjalína 2 tek­in í rekst­ur í nóv­em­ber.

Mastrið var reist á veg­um bygg­inga­fyr­ir­tæk­is­ins El­nos og stend­ur nú við Kúa­gerði á Reykja­nesi við hliðina á Reykja­nes­braut. Um 50 möst­ur hafa nú þegar verið sett sam­an og stefnt er að því að reisa þau hvert á fæt­ur öðru næstu daga. 

Íbúum Suður­nesja hef­ur fjölgað hratt á und­an­förn­um árum og í Reykja­nes­bæ hef­ur fjölg­un­in verið mest á landsvísu. Hana má að hluta til rekja til stór­auk­inna at­vinnu­tæki­færa í ferðaþjón­ustu og iðnaði og henni fylgja ýms­ar áskor­an­ir í tengsl­um við raf­orku­kerfið. Eft­ir­spurn eft­ir raf­orku hef­ur stór­auk­ist í takt við íbúa­fjölda og staf­ar jafn­framt af auk­inni orku­notk­un gagna­vera og aukn­um um­svif­um á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Áhrif þess ef Suður­nesjalína 1 færi skyndi­lega úr rekstri, til dæm­is vegna hraun­rennsl­is, væri nær und­an­tekn­ing­ar­laust straum­leysi á Suður­nesj­um og ljóst er því að Suður­nesjalína 2 er mik­il­vægt skref í átt að auknu orku­ör­yggi.

Mastrið stendur stolt steinsnar frá Reykjanesbraut
Mastrið stend­ur stolt steinsnar frá Reykja­nes­braut Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert