Fullorðnir karlmenn sem slösuðust í sprengingunni

Aðgerðum slökkviliðsins er lokið.
Aðgerðum slökkviliðsins er lokið. mblk.is/Eythor Arnason

Störf­um slökkviliðsmanna er lokið við Hjarðar­haga 48. Slökkviliðið er engu nær um upp­tök spreng­ing­ar og elds sem kom upp í kjall­ara­í­búð. Þrír full­orðnir karl­menn voru flutt­ir á bráðamót­töku.

Útlit er fyr­ir að um al­var­legt at­vik hafi verið að ræða.

„Ég veit ekki nán­ar um ástand mann­anna annað en það að ástandið er al­var­legt,“ seg­ir Vern­h­arð Guðna­son deild­ar­stjóri á aðgerðasviði slökkviliðsins á höfuðborg­ar­svæðinu. 

Allt til­tækt lið 

Hann seg­ir að mönn­um hafi strax orðið ljós al­vara máls­ins. Slökkvilið úr Reykja­vík var fyrst á staðinn og fór inn um dyr til slökkvistarfa en í kjöl­farið kom ann­ar dælu­bíll og slökkviliðsmenn úr hon­um fóru inn um glugga garðmeg­in við húsið. Einn íbúi hafði kom­ist út af sjálfs­dáðum en bjarga þurfti tveim­ur úr íbúðinni

Vernharð Guðnason.
Vern­h­arð Guðna­son. mbl.is/​Eythor Arna­son

„Okk­ar fólk stóð sig frá­bær­lega“ 

„Við send­um allt til­tækt lið á staðinn. Þegar við kom­um þangað var mik­ill eld­ur á jarðhæðinni og frá fyrsta bíl frá okk­ur fóru reykkafar­ar strax inn og fóru að leita, slökkva og bjarga. Í kjöl­farið af því komu aðrar stöðvar á staðinn. Þá bætt­ust við önn­ur reykkafara­gengi. Þær aðgerðir gengu í sjálfu sér mjög vel og okk­ar fólk á vett­vangi á mikið hrós skilið fyr­ir fum­laus vinnu­brögð. Því það var mik­ill eld­ur þarna og erfiðar aðstæður. Auk þess var grun­ur um að fólk væri inni og það sann­ar­lega eyk­ur álag á okk­ar fólk,“ seg­ir Vern­h­arð. 

Íbúar og sjónarvottar bíða áhyggjufullir.
Íbúar og sjón­ar­vott­ar bíða áhyggju­full­ir. mbl.is/​Eythor Arna­son

Að sögn Vern­h­arðs gekk greiðlega að slökkva eld­inn. 

„Það var eld­ur í fleiri en einu rými í hús­inu en þá má segja að greiðlega hafi gengið að slökkva hann og okk­ar fólk stóð sig frá­bær­lega,“ seg­ir Vern­h­arð. 

Lög­regla fer með rann­sókn máls­ins og kann­ar elds­upp­tök. 

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert