Hvessir og fer að rigna sunnan heiða

Það fer að rigna seinni partinn á Suður- og Vesturlandi
Það fer að rigna seinni partinn á Suður- og Vesturlandi mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í dag verður vax­andi suðaustanátt, 10-18 m/​s og það fer að rigna sunn­an-og vest­an­lands seinni part­in. Mun hæg­ari vind­ur og bjart verður norðaust­an­til en skýjað í kvöld. Hit­inn verður á bil­inu 10 til 22 stig og verður hlýj­ast norðaust­an­lands.

Í hug­leiðing­um veður­fræðings á Veður­stofu Íslands seg­ir að hæðin á milli Íslands og Skot­lands, sem stjórnað hef­ur veðrinu síðustu daga, sé að gefa eft­ir og opnað því leiðina fyr­ir lægðir að sækja að land­inu.

Á morg­un er út­lit fyr­ir stífa suðaust­læga átt með rign­ingu á aust­an­verðu land­inu, tals­verðri úr­komu á Suðaust­ur­landi, en hæg­ari vind­ur og skúr­ir vest­an­til. Það kóln­ar held­ur í veðri.

Veður­vef­ur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert