Til stendur að setja Sæbraut í stokk á um eins kílómetra löngum kafla, frá Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs. Framkvæmdir vegna stokksins eiga að hefjast árið 2027 og er áætlað að hann verði tilbúinn árið 2030.
Þetta kemur fram í skipulagslýsingu sem var kynnt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur í gær vegna nýrra deiliskipulagsáætlana og deiliskipulagsbreytinga fyrir Sæbrautarstokk, en verkefnið er eitt þeirra stærstu á höfuðborgarsvæðinu á komandi árum.
Þar segir að eitt af markmiðum með gerð vegstokka sé að bæta umhverfisgæði í aðliggjandi byggð og tengja betur saman hverfi sem eru aðskilin með umferðarþungum stofnbrautum.
Í bókun meirihlutans í borginni er áfanganum sem felst í skipulagslýsingunni fagnað.
„Á yfirborði stokksins verður borgargarður. Loftgæði og hljóðvist mun batna verulega í aðliggjandi hverfum. Við teljum mikilvægt að í áframhaldandi skipulagsvinnu verði sérstök áhersla lögð á öryggi gangandi vegfarenda við gatnamót Kleppsmýrarvegar og Sæbrautar,” segir meðal annars í bókuninni.
Í skipulagslýsingunni kemur fram að verkefnið sé ein af lykilforsendum fyrir uppbyggingu austur-vesturhluta borgarlínu 2025 til 2031, tengingu stórra uppbyggingarsvæða á Ártúnshöfða, Keldum, Keldnaholti og Blikastaðalandi.
„Stokkurinn verður tvískiptur með tveimur akreinum í hvora átt. Á stærstum hluta stokksins verða einnig að- og fráreinar til breikkunar. Lofthæð í stokknum verður um 6,5 m en dýpi á greftri fyrir stokk er áætlað um 9,5 m. Heildarbreidd stokks er almennt um 23 metrar fyrir tvær akreinar í hvora átt og um 30 m með viðbættri blöndunarrein en nokkru meiri við rampa að og frá Kleppsmýrarvegi/Skeiðarvogi,” segir í lýsingunni.
Einnig felst í framkvæmdinni aðlögun á aðliggjandi götum með nýjum og breyttum gagnamótum við Kleppsmýrarveg/Skeiðarvog, breytingu á gatnamótum við Súðavog og aðlögun á göngu- og hjólastígum ásamt veitukerfum.
„Lokað verður fyrir umferð frá Sæbraut inn Súðarvog en ný tenging fyrir akandi umferð verður milli Suðurlandsbrautar og Súðarvogs, ofan á stokknum. Fyrsta lota Borgalínu fer yfir suðurhluta stokksins ásamt hluta lotu þrjú sem tengir Mjódd við Vogatorg,” kemur jafnframt fram í lýsingunni.
Stokkurinn kallar á breytingar á aðliggjandi svæðum í formi varanlegra og tímabundinna skerðinga á lóðum og niðurrifi hluta núverandi fasteigna. Það verður nánar skilgreint í deiliskipulagi, að því er kemur fram í lýsingunni.