Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir það tíðkast að bókunaraðilar í ferðaþjónustu taki allt að 30% þóknun fyrir þjónustu sína.
Verðlagseftirlitsmaður Sviss fyrirskipaði í gær ferðaþjónustuvefnum Booking.com að lækka þóknanir sínar fyrir hótelgistingu um næstum fjórðung. Jóhannes segir í samtali við mbl.is að Booking.com taki alls ekki hæstu þóknun sem tíðkast í ferðaþjónustunni.
„Booking.com tekur ekki hæstu þóknun í ferðaþjónustunni. Fyrirtæki eins og GetYourGuide sem eru í afþreyingunni taka allt að 30% þóknun fyrir þjónustu sína en það er allur gangur á þessu.“
Jóhannes telur ólíklegt að hægt væri að grípa til sambærilegra aðgerða á Íslandi og gripið hefur verið til í Sviss.
Bókunaraðilar í gistiþjónustu hafa að sögn Jóhannesar lengi verið með ákvæði í samningum sínum við hótel að hótelin megi ekki bjóða lægra verð á eigin vegum en boðið er hjá bókunaraðilunum, svokallaðar „parity-klásúlur“.
Í forúrskurði Evrópudómstólsins í september síðastliðnum var þó úrskurðað að ákvæði sem þessi stæðust ekki ákvæði ESB-réttar. Dómstólar í Hollandi höfðu farið fram á það að Evrópudómstóllinn myndi taka ákvæði bókunaraðilana til skoðunar.
„Þessar „parity-klásúlur“ voru dæmdar ólöglegar hjá Evrópudómstólnum og í kjölfarið hefur myndast umræða um það hvort að innan gistibransans í Evrópu séu þóknanir of háar,“ segir Jóhannes sem telur líklegt að aðgerðir Svisslendinga komi til vegna umrædds dóms dómstólsins.
Að sögn Jóhannesar hefur einnig verið umræða hérlendis um það hvort að þóknanir bókunaraðila séu of háar. Hann segir þó að þessir aðilar hafi reynst mikilvægir til þess að minni aðilar í ferðaþjónustu geti komið sér á framfæri.
„Fyrir þessa minni aðila þá hefði peningurinn sem þeir greiða í þóknanir að öðrum kosti líklega farið í eigin markaðssetningu. Það má síðan deila um það hversu eðlilegt sé að þóknunin sé há, það fer bara eftir viðskiptaskilmálum og hvað er verið að fá út úr þjónustunni,“ bætir Jóhannes við.
Jóhannes segir að Booking.com og Expedia hafi milligöngu um sölu á alls 70% af gistimarkaðnum innan Evrópu og að Evrópusambandið hafi undanfarið reynt að takmarka markaðsráðandi stöðu þessara fyrirtækja meðal annars með reglusetningu.