Byrja að ráðast á siglfirska hjallinn í hádeginu

Hilmar vinir hans hófu verkið í gær og rifu klæðningu …
Hilmar vinir hans hófu verkið í gær og rifu klæðningu af húsinu. Ljósmynd/Aðsend

Tug­ir hafa boðað komu sína til að hjálpa Hilm­ari Daní­eli Val­geirs­syni, 36 ára Sigl­f­irðingi, sem hef­ur óskað eft­ir hjálp við að rífa um 600 fer­metra hús á Aðal­götu 6.b sem eyðilagðist í óveðri í sept­em­ber árið 2023. Stefnt er að því að hefja niðurrif í há­deg­inu í dag.

„Ég er spennt­ur og stressaður á sama tíma, spennt­ur því ég hlakka til að tak­ast á við þetta en stressaður að ná ekki að klára þetta í tíma,“ seg­ir Hilm­ar en hon­um hef­ur verið veitt­ur frest­ur til 15. júní til að rífa húsið.

Eins og fram hef­ur komið hef­ur Hilm­ar lýst því að gjaldþrot blasi við ef úr verður að bær­inn rífi húsið á hans kostnað líkt og Heil­brigðis­eft­ir­lit Norður­lands Vestra (HNV) hef­ur úr­sk­urðað um.

Hilmar Daníel Valgeirsson er eigandi að Aðalgötu 6b. sem fór …
Hilm­ar Daní­el Val­geirs­son er eig­andi að Aðal­götu 6b. sem fór illa í óveðri árið 2023. Ljós­mynd/​Aðsend

Hefja verkið á há­degi 

Óskaði hann eft­ir aðstoð bæj­ar­búa í mynd­bandi sem hann gaf út bæði á ensku og ís­lensku.

Form­lega hefst niðurrifið klukk­an 12 í dag og hafa Ver­ald­ar­vin­ir, Vin­ir og vanda­menn boðað komu sína. Sjálf­ur von­ast Hilm­ar eft­ir því að sjá sem flesta bæj­ar­búa koma. Brugg­verk­smiðjan Seg­ull 67 hyggst veita hress­ingu í lok hvers dags, en þeir eru ná­grann­ar Hilm­ars á Aðal­götu 6b sem er húsið sem til stend­ur að rífa.

Marg­ir hafa sagst ætla að koma

„Það hafa marg­ir í bæn­um komið að máli við mig og sagst ætla að koma. Meira að segja fólk sem ég þekki ekki neitt og auðvitað verður maður glaður að heyra svo­leiðis. Bæj­ar­stjór­inn hef­ur verið mjög hjálp­sam­ur og það hjálp­ar til,“ seg­ir Hilm­ar.

Bær­inn pantaði gáma

Fjalla­byggð hef­ur pantað gáma á sinn kostnað þannig að hægt verði að koma braki úr hús­inu fyr­ir og flokka það með rétt­um hætti.

„Við bæj­ar­stjór­inn [Þórir Há­kon­ar­son] sam­mælt­umst um að þessu myndi ljúka fyr­ir miðjan júní en þetta ætti ekki að taka svo lang­an tíma. Þessu ætti að vera lokið vel fyr­ir það ef allt geng­ur að ósk­um,“ seg­ir Hilm­ar.

Stór­virk­ar vinnu­vél­ar helsta óviss­an

Hilm­ar seg­ir að mesta óviss­an snúi að því hvort ein­hver með stór­virk­ar vinnu­vél­ar geti séð af tíma sín­um til að hjálpa til. Sjálf­ur er hann með at­vinnu­lyft­ara og traktor til að toga hitt og þetta til. Hins veg­ar þarf stór­virk­ari vél­ar í helstu burðarstoðir húss­ins.

„Mig lang­ar að taka fram að þetta er verk­efni sem tek­ur marga daga þannig að jafn­vel þó að þú haf­ir bara smá tíma til að taka eitt­hvað og henda inn í gám þá hjálp­ar allt til. Ég verð hér alla daga að vinna í þessu,“ seg­ir Hilm­ar.

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert