Hef pissað í mig af hlátri

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Þór­unn Arna Kristjáns­dótt­ir hef­ur samið leik­verk fyr­ir börn, leikið í slík­um verk­um og leik­stýrt. Í viðtali í Dag­mál­um Morg­un­blaðsins seg­ist hún vanda sig við vinnu fyr­ir börn, en geld­ur var­hug við því að boðskap­ur­inn ríði list­inni á slig.

    Það er um­deilt hvort barna­bæk­ur eigi að hafa ein­hvern boðskap, eða hvor þær eigi þær bara að vera skemmti­leg­ar bæk­ur. Sem dæmi má nefna að Gunn­ar Helga­son nefndi það í viðtali í Dag­mál­um á síðasta ári að mik­il­vægt væri að börn geti séð sig sjálf í sög­um.

    „Gunni Helga er auðvitað bara rosa­lega oft uppi í rúmi með okk­ur á kvöld­in, eins og ég segi stund­um, af því að ég elska þessa stund sem maður á með börn­un­um sín­um rétt áður en maður fer að sofa og er að lesa bók. Og ég hef sagt það við barna­bóka­höf­unda: Þetta er svo dýr­mætt augna­blik, þetta tími sem við gef­um okk­ur, þegar all­ir eru komn­ir í ró og les­um kafla í bók og sem skap­ar svo ein­hverj­ar umræður.

    En mér finnst að kafl­inn í bók­inni þurfi ekki að vera: Heyrðu krakk­ar, svona þurf­um við nú að lifa og við þurf­um að vera dug­leg og við þurf­um að hlusta. Hann hreyf­ir kannski frek­ar við til­finn­ing­um og þegar til­finn­ing­arn­ar hreyf­ast þá er maður alltaf að stækka. Þannig að ég hef sko, og nú skamma stelp­urn­ar mín­ar mig ör­ugg­lega, bara pissað í mig af hlátri yfir bók uppi í rúmi. Og það er stór­kost­legt. Og þannig stækk­ar maður.“

    mbl.is
    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert