Nýr leikskóli mikilvægari en að eiga Perluna

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, ræddi við blaðamann í nýjum …
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, ræddi við blaðamann í nýjum sýningarsal Perlunnar. mbl.is/Eyþór

„Þetta er gleðileg­ur og góður dag­ur fyr­ir okk­ur Reyk­vík­inga,“ seg­ir Heiða Björg Hilm­is­dótt­ir borg­ar­stjóri eft­ir að hafa skrifað und­ir sölu­samn­ing á Perlunni. 

„Við get­um áfram verið stolt af Perlunni sem parti af okk­ar borg en nýtt fjár­magnið sem hér hef­ur legið í önn­ur þarfari verk­efni sem snerta dag­legt líf íbúa Reykja­vík­ur­borg­ar.“

Ekki búið að ráðstafa fénu

Heiða, sem er ræddi við blaðamann að lokn­um fundi í nýj­um sýn­ing­ar­sal Perlunn­ar þar sem samn­ing­ur­inn var und­ir­ritaður, seg­ist ánægð með söl­una. Borg­in hafi fengið rúm­lega það verð sem óskað var eft­ir en ekki sé búið að ráðstafa fénu af söl­unni. „Þetta fer bara í fjár­fest­ingu í grunn­skól­um og leik­skól­um og því sem við erum að fjár­festa í. Það er gott fyr­ir okk­ur að fá tekj­ur inn til að geta fjár­magnað það.“ 

Hún held­ur áfram: „Það er hlut­verk okk­ar í borg­ar­stjórn að selja þær eign­ir sem við erum ekki að nota og koma þeim í þau not sem skipta íbúa okk­ar og Reykja­vík­ur­borg meira máli. Og ég held að fyr­ir íbú­ana skipti nýr leik­skóli meira máli en að akkúrat við eig­um Perluna.“

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Gunnar Gunnarsson, forstjóri Perlunnar, skrifa …
Heiða Björg Hilm­is­dótt­ir borg­ar­stjóri og Gunn­ar Gunn­ars­son, for­stjóri Perlunn­ar, skrifa und­ir kaup­samn­ing. mbl.is/​Eyþór

Söl­unni fylgja kvaðir um að Perluna eigi að nýta und­ir afþrey­ing­ar­tengda starf­semi og að öll grunn­skóla­börn eigi að hafa aðgang þangað í skipu­lagðar heim­sókn­ir end­ur­gjalds­laust. Þar að auki á Reykja­vík­ur­borg for­kaups­rétt að Perlunni.

Hjákát­leg gagn­rýni

„Mér finnst hún í raun­inni svo­lítið hjákát­leg ef ég á að segja al­veg eins og er,“ seg­ir Heiða Björg, spurð út í gagn­rýni borg­ar­full­trúa Sjálf­stæðis­flokks­ins á söl­una.

Í at­kvæðagreiðslu um hvort samþykkja ætti kaup­samn­ing­inn sátu borg­ar­full­trú­ar Sjálf­stæðis­flokks­ins hjá. Þá lögðu þeir fram bók­un sem gagn­rýndi fyr­ir­vara við greiðslu­fyr­ir­komu­lag og óljós vil­yrði um bygg­ing­ar­heim­ild­ir, en sögðust þó styðja það að Perl­an hefði verið sett í sölu­ferli.

„Við erum flest sam­mála um það, skilst mér á því sem þeir segja, að við vilj­um selja Perluna,“ seg­ir Heiða. „Þau höfðu áhyggj­ur af ein­hverj­um ákvæðum í samn­ingn­um sem mér finnst bara mjög já­kvæð fyr­ir Reykja­vík­ur­borg. Það er há­mark á hvað kaup­andi gæti rukkað Reykja­vík­ur­borg sem skuld í viðhaldi og ég held að það sé mjög sann­gjörn upp­hæð. Áhætt­an er mjög lít­il fyr­ir Reykja­vík­ur­borg. Þetta er alltaf góð sala.“

Nýr sýningarsalur Perlunnar.
Nýr sýn­ing­ar­sal­ur Perlunn­ar. mbl.is/​Eyþór

Glöð að klára dæmið

Sölu­ferli Perlunn­ar hófst í júní síðasta ári og Heiða seg­ist glöð að klára dæmið. Und­an­farna mánuði hafi hún lokið við mörg verk­efni sem lengi hafi verið í bíg­erð. 

„Þetta er mik­il­væg­ur staður fyr­ir borg­ar­búa og mörg­um finnst skrýtið að Reykja­vík­ur­borg eigi ekki Perluna en við verðum í þéttu sam­bandi við þá [kaup­end­ur] áfram og þróum þetta frá­bæra svæði sem áfangastað,“ grein­ir hún frá. 

Reykja­vík­ur­borg held­ur eft­ir fjór­um af sex tönk­um Perlunn­ar. Ekki ligg­ur fyr­ir hvernig borg­in hyggst nýta þá. „Það er ekk­ert plan með þá. Reykja­vík er alltaf í þróun og alltaf að breyt­ast og það er gott að hafa marga mögu­leika,“ seg­ir borg­ar­stjóri.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka