Í tilefni af aðalfundi Krabbameinsfélagsins stendur félagið fyrir málþingi í dag klukkan 10 í húsnæði sínu í Skógarhlíð 8.
Málþingið ber yfirskriftina: „Viljum við að færri fái krabbamein? Eru vannýtt tækifæri til þess í íslensku samfélagi?“ og fjallar um sóknarfæri í forvörnum gegn krabbameinum. Í málþinginu taka þátt fulltrúar stjórnvalda og sérfræðingar félagsins.
Dagskráin hefst klukkan 10:00 og þátttaka er gjaldfrjáls og öllum opin.
Hægt er að fylgjast með málþinginu í streymi hér fyrir neðan: