Hlýr en blautur júní í kortunum

Enn er spáð markverðum hlýindum, þó ekki eins greinilega suðvestantil.
Enn er spáð markverðum hlýindum, þó ekki eins greinilega suðvestantil. mbl.is/Hákon

Ein­ar Svein­björns­son, sem held­ur úti veður­vefn­um Bliku, tel­ur lík­legt að fyrri hluti júní verði í hlýrri kant­in­um þó aðallega á aust­an­verðu land­inu. Það má aft­ur á móti einnig bú­ast við nokk­urri bleytu suðvest­an­til.

Í færslu á Face­book rýn­ir veður­fræðing­ur­inn í spá Evr­ópsku reikni­miðstöðvar­inn­ar (ECMWF)

„Séu vik­urn­ar í júni skoðaðar ein af ann­arri er gert ráð fyr­ir því að fyrri hlut­ann júní (til 16.) verði hiti um 3 stig­um ofan meðallags og síðari hluti mánaðar­ins 1-3 stig­um yfir meðallagi,“ skrif­ar Ein­ar.

„Sem sé enn er spáð markverðum hlý­ind­um. Þó ekki eins greini­leg[u]m sunn­an- og vest­an­til,“ bæt­ir hann við og tek­ur fram að þess­ar vik­ur verði lík­lega heilt yfir frem­ur blaut­ar.

„Grænt“ úr­komu­frávik komi fram í þeim öll­um í nýj­ustu keyrsl­unni og þurrt frá­vik yfir meg­in­landi Evr­ópu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert