Íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa margir tekið eftir því síðustu daga að kveikt hefur verið á götulýsingu allan sólarhringinn. Umræður hafa sprottið upp um þetta í íbúahópum og furða margir sig á, enda bjartasti tími ársins runninn upp.
Í Vesturbæ Reykjavíkur og á Seltjarnarnesi hafa ljós verið kveikt á ljósastaurum síðustu vikuna eða svo. Hjalti J. Guðmundsson, skrifstofustjóri á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, segir að bilun hafi komið upp í ræsibúnaði á þessu svæði. „Þetta er á nokkuð stóru svæði. Veitur eru að fara yfir þetta og gera við,“ segir hann.
Auk þessa eru nokkur tilvik þess að kveikt hafi verið á götulýsingu um hábjartan dag víðar í höfuðborginni. Hjalti segir að það eigi sér eðlilega skýringu. „Þar er bilanagreining í gangi en hún fer fram með því að kveikja á svæðum til að athuga hvaða staurar eru ljóslausir. Svo er rúntað um og bilunin fundin. Þá er slökkt aftur og gert við. Það er ekki hægt að gera þetta nema kveikja á stóru svæði. Kerfið er hannað þannig.“
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.