Lítið hlaup með stórt hjarta

Vinirnir Sturlaugur Hrafn Ólafsson, Eyjólfur Flóki Freysson, Helgi Þrastarson og …
Vinirnir Sturlaugur Hrafn Ólafsson, Eyjólfur Flóki Freysson, Helgi Þrastarson og Ari Flóki Helgason. Ljósmynd/Aðsend

 „Við vild­um gera eitt­hvað sem skipt­ir máli áður en grunn­skóla­göng­unni lýk­ur og ákváðum að nota tíma okk­ar og orku í þetta fram­tak, segja fjór­ir dreng­ir í 10. bekk í Lauga­lækj­ar­skóla sem standa fyr­ir góðgerðar­hlaupi um helg­ina.

Hlaupið, sem dreng­irn­ir lýsa sem „litlu hlaupi með stórt hjarta“, verður í kring­um Hús­dýrag­arðinn, sunnu­dag­inn næst­kom­andi klukk­an 14:00. All­ur ágóði hlaups­ins renn­ur til styrkt­ar­fé­lags­ins Gleym mér ei sem styður við for­eldra sem missa barn á meðgöngu og í eða eft­ir fæðingu.

Vin­irn­ir Stur­laug­ur Hrafn Ólafs­son, Eyj­ólf­ur Flóki Freys­son, Helgi Þrast­ar­son og Ari Flóki Helga­son skipu­leggja hlaupið. Þeir segj­ast bæði vilja safna fé fyr­ir Gleym mér ei og vekja at­hygli á mik­il­vægi þess að styðja við for­eldra sem verða fyr­ir missi á meðgöngu eða fljót­lega eft­ir fæðingu. Málstaður­inn er drengj­un­um hug­fólg­inn en for­eldr­ar eins þeirra misstu á meðgöngu.

Hlaupið er loka­verk­efni í Lauga­lækj­ar­skóla. „Við ætluðum að reyna að gera eitt­hvað loka­verk­efni sem tengd­ist þessu og þá stakk einn strákanna í hópn­um upp á að við héld­um svona hlaup,“ seg­ir Stur­laug­ur Hrafn í sam­tali við blaðamann.

Hring­ur­inn í kring­um Hús­dýrag­arðinn er um einn kíló­metri og fólk get­ur ákveðið sjálft hvað það vill hlaupa marga hringi.

Skrán­ing í hlaupið fer fram á hlaup.is. All­ir eru vel­komn­ir, hvort sem fólk ætl­ar að hlaupa eða ekki. „Mætið í stemn­ing­una, bjóðið öll­um sem þið þekkið,“ seg­ir einn drengj­anna í mynd­bandi á In­sta­gram-síðu hlaups­ins.

„Okk­ur finnst gott að láta gott af okk­ur leiða og gera hluti sem eru góðir fyr­ir sam­fé­lagið og hjálpa fólki sem þarf á því að halda,“ seg­ir Stur­laug­ur.

Í haust stefna dreng­irn­ir á fram­halds­skóla þar sem þeir ætla að halda áfram að gera skemmti­lega hluti og láta gott af sér leiða.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert