Schengen-samstarfið voru mistök

Úlfar Lúðvíksson
Úlfar Lúðvíksson

Það reynd­ust af­drifa­rík mis­tök þegar ákveðið var að Ísland gerðist aðili að Schengen-sam­starf­inu. Þetta seg­ir Úlfar Lúðvíks­son, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri á Suður­nesj­um, í nýju viðtali á vett­vangi Spurs­mála.

Sam­starfið fel­ur í sér af­nám per­sónu­bund­ins eft­ir­lits á innri landa­mær­um þeirra 27 ríkja sem aðild eiga að því en um leið sam­starf evr­ópskra lög­regluliða, sem ætlað er að tryggja ör­yggi borg­ara á svæðinu.

Örygg­is­sjón­ar­mið að ganga ekki inn

„Ef maður horf­ir til ör­ygg­is­sjón­ar­miða þá ætti Ísland aldrei að hafa farið inn í þetta sam­starf,“ seg­ir Úlfar. Hann bend­ir á að mikl­ir veik­leik­ar séu á hinum svo­kölluðu innri landa­mær­um. Það hafi ber­lega komið í ljós vegna ófremd­ar­ástands við Miðjarðar­haf þar sem fólk flæðir inn í Evr­ópu og inn fyr­ir þessi landa­mæri án þess að menn fái rönd við reist.

Úlfar seg­ir að þrátt fyr­ir þetta séu til úrræði til þess að vinna bet­ur úr stöðunni sem skap­ast á grunni Schengen-sam­starfs­ins. Það sé hins veg­ar sár­græti­legt að það hafi ekki verið gert og landa­mær­in því að miklu leyti staðið óvar­in um langt ára­bil.

Úlfar Lúðvíksson er nýjasti gestur Stefáns Einars Stefánssonar í Spursmálum.
Úlfar Lúðvíks­son er nýj­asti gest­ur Stef­áns Ein­ars Stef­áns­son­ar í Spurs­mál­um. mbl.is/​María Matth­ías­dótt­ir

Vill að emb­ætt­is­menn víki

Þar beri dóms­málaráðherra ábyrgð en ekki síst Hauk­ur Guðmunds­son, ráðuneyt­is­stjóri í dóms­málaráðuneyt­inu, og Sig­ríður Björk Guðjóns­dótt­ir rík­is­lög­reglu­stjóri. Þau eiga bæði sæti í þjóðarör­ygg­is­ráði. Seg­ir Úlfar að van­ræksla þeirra í þess­um mál­um sé þess vald­andi að þau eigi bæði að víkja úr embætt­um sín­um.

Viðtalið við Úlfar má sjá og heyra í heild sinni í spil­ar­an­um hér að neðan (hefst á 37:19).

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert