Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur reist varðturna á fjölförnum stöðum í höfuðborginni. Vasaþjófnaður hefur aukist verulega í Reykjavík að undanförnu en að sögn lögreglu týnist fólk til landsins „sem er að stunda þetta skipulega“.
„Þarna eru myndavélar sem eru okkar augu og eyru á þessum stöðum þar sem við ekki höfðum myndavélar,“ segir Guðmundur Pétur Guðmundsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, spurður út í varðturnana sem hafa nú verið reistir við Skólavörðustíg og Hallgrímskirkju.
„Þær tengjast svo þessu neti öryggismyndavéla sem lögreglan og Reykjavíkurborg eru með í samstarfi. Við erum að bregðast við þeim fjölda vasaþjófnaðarmála sem hafa komið upp núna síðustu tvo mánuði,“ bætir hann við.
Nýir varðturnar komi til með að hjálpa lögreglu að leysa allskonar mál, þó ástæðan fyrir tilkomu þeirra sé aðallega vasaþjófnaður.
Spurður hvað sé að valda aukningu á vasaþjófnaði segir Guðmundur fólk vera að týnast til landsins „sem er að stunda þetta skipulega“.
„Það eru svo sem líka Íslendingar að stunda vasaþjófnað en ekkert svona eins og er núna að gerast. Það eru ansi kræfir þjófar á ferð. Við erum búin að handtaka nokkra vasaþjófa og erum með mál á þá, en þetta heldur samt áfram,“ segir hann.
Lögreglan sé að bregðast við vegna fjölda ferðamanna á þessum slóðum – í og fyrir utan Hallgrímskirkju og niður Skólavörðustíginn, sérstaklega á regnbogahlutanum.
„Við erum að reyna að efla fælingarmátt við afbrotum, hjálpa okkur að leysa mál sem koma upp og efla öryggiskennd þeirra sem eru á ferðinni þarna, hvort sem það eru Íslendingar eða ferðamenn.“
Guðmundur segir turnana vera tilraunaverkefni til þriggja mánaða sem verði svo endurmetið. Aðspurður segir hann endurmatið byggja á hver málastaðan verði eftir sumarið.
Ef tíðnin lækkar megi ætla að turnarnir hafi fælingarmátt en einnig verði horft á hve mikið fleiri mál lögreglan nær að leysa.
Að sögn Guðmundar leysir lögreglan fullt af málum með aðstoð myndavéla dagsdaglega, víðsvegar um borgina.
Fjöldi ökutækja sé t.d. kominn með upptökuvélar til að leysa hvernig tildrög voru í umferðarslysi. Segir hann upptökur mjög stóran vaxandi þátt í starfi lögreglu.
Í facebook hóp fyrir íbúa í miðborg Reykjavíkur hefur farip fram mikil gagnrýni á varðturnunum. Einn íbúi kallaði turnana skrímsli og sagðist venjulega setja spurningarmerki við eftirlitsmyndavélar og sérstaklega á umræddum stöðum.
Ekki hafa allir íbúar þó tekið í sama streng en nokkrir hafa bent á að turnarnir auki öryggi í borginni, nema fyrir þá sem hafi eitthvað að fela.
Spurður álits á þessum ummælum segir Guðmundur að alltaf megi deila um sjónmengun, þar sé ólíklegt að allir verði sammála. Reynt hafi verið að stilla þeim upp þannig að þeir væru ekki í „hefðbundinni mynd ferðamannsins“.
„Þetta er ekki í sjónlínu upp Skólavörðustíginn, þetta er ekki beint fyrir framan kirkjuna heldur aðeins til hliðar, örlítið falið.
Að sjálfsögðu sjást þeir samt, það á að vera fælingarmáttur í þeim, að sjá að það séu myndavélar, en þetta verður alltaf umdeilt, við vitum það.“