Tvö risaskip samtímis í Sundahöfn

Sundahöfn Norwegian Prima (nær á myndinni) og MSC Preziosa lágu …
Sundahöfn Norwegian Prima (nær á myndinni) og MSC Preziosa lágu samtímis við Skarfabakka á fimmtudaginn. Það var handagangur í öskjunni þegar verið var að þjónusta farþega skipanna. Morgunblaðið/Eggert

Það fjölgaði held­ur bet­ur í Sunda­höfn í Reykja­vík í vik­unni þegar tvö risa­stór skemmti­ferðaskip lágu sam­tím­is við Skarfa­bakka.

Um borð í skip­un­um voru sam­tals 9.079 manns, farþegar og áhöfn. Er þetta álíka fjöldi og í stór­um kaupstað á Íslandi. Nefna má að íbú­ar Akra­ness nálg­ast nú 9.000.

Norweg­i­an Prima er 143,535 brútt­ót­onn og með allra stærstu skip­um sem hingað koma í sum­ar. Farþega­fjöld­inn er 3.014 og í áhöfn eru 1.443. MSC Prezi­osa er 139.072 brútt­ót­onn. Farþega­fjöld­inn er 3.357 og í áhöfn eru 1.265.

Það var mik­ill er­ill í Sunda­höfn á fimmtu­dag­inn og lang­ar raðir af rút­um og leigu­bíl­um í farþega­flutn­ing­um. Mik­ill fjöldi fólks vann svo við að af­greiða skip­in og farþega þeirra í Sunda­höfn, bæði starfs­menn á veg­um Faxa­flóa­hafna og umboðsskrif­stofa skipa­fé­lag­anna. Mörg hundruð manns komu að því að þjón­usta skip og farþega.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert