Kristrún eins og leir í höndum Þorgerðar

Current Time 0:00
Duration 0:30
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:30
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
  • default, selected
Skip in 5...

Sam­fé­lags­miðlar ís­lensks stjórn­mála­fólks eru alltaf und­ir smá­sjá og því sem þar fer fram gert skil með reglu­bundn­um og skemmti­leg­um hætti í Spurs­mál­um. Yf­ir­ferðina má sjá í meðfylgj­andi mynd­skeiði eða í rituðu máli hér að neðan.

Síðasti sum­ar­dag­ur­inn runnið sitt skeið

Þá er sól­ar­vím­an runn­in af flest­um okk­ar og niðurtúr­inn haf­inn. Síðustu dag­ar hafa auðvitað verið lygi­lega góðir veðurfars­lega hér á fróni og ekki laust við að lands­menn hafi verið eins og hráviði um allt og nýtt sér þetta öfga­kennda blíðviðri til hins ýtr­asta.

Þetta er það besta við gróður­húsa­áhrif­in, Íslend­ing­ar elska „global warm­ing“. Það er ekk­ert jafn eft­ir­sókn­ar­vert hér á landi eins og að líta út eins og reykt­ur lax á leiðinni í ferm­ing­ar­veislu.

Veisl­an stóð þó ekki lengi yfir. Síðasti al­vöru sum­ar­dag­ur­inn hef­ur runnið sitt skeið segja þeir. Aum­ingja við, ís­lensku fórn­ar­lömb­in. Nú sleikj­um við sár­in og sóp­um bruna­rúst­un­um upp í fægiskóflu á meðan við erum með krón­íska kjúk­linga­húð af kulda.

Alltaf þurf­um við að gjalda þess illi­lega að hafa fengið pínu­litla smugu til þess að flat­maga í Naut­hóls­vík í friði fyr­ir suðvest­an stormi með él á köfl­um. Hörð brot­lend­ing - og nú fjölg­ar lyfja­á­vís­un­um á þung­lynd­is­lyfj­um ör­ugg­lega enn eina ferðina. Skil vel að fólk þurfi að fá pill­ur við þessu.

Það vekur athygli hvað Kristrún er æ oftar farin að …
Það vek­ur at­hygli hvað Kristrún er æ oft­ar far­in að temja sér siði Þor­gerðar Katrín­ar. Sam­sett mynd

Diljá og Simmi Dabbi fóru í göngu­túr

Vin­irn­ir Diljá Mist og Sig­mund­ur Davíð viðruðu hvort annað úti í sól­inni á dög­un­um og skelltu sér í heilsu­bót­ar­göngu sam­an. Ísdrottn­ing­in sjálf skjalfesti þetta uppá­tæki þeirra vina og deildi með alþjóð í „story“ á In­sta­gram. Það er eitt­hvað sem seg­ir mér að Diljá Mist, lýðheilsu- og þyngd­ar­stjórn­un­ar her­for­ingi Alþing­is, hafi fest Simma Dabba í hundataum­inn og sigað hon­um út. Sko, samt með hundarödd­inni sinni: „Simmi, eig­um við að koma í göngu­túr? Eig­um við að koma út að pissa? Já­hhh koooomdu kall­inn.“

Axl­arnudd á Alþingi

Æ, svo var ekk­ert smá sætt hvað Áslaug Arna fór mjúk­um hönd­um um Simma Dabba eft­ir göngu­túr­inn með Diljá. Hún gaf hon­um axl­arnudd á Alþingi! Enda er maður­inn orðinn hálfr­ar ald­ar gam­all. Það er ekk­ert fal­legra en þver­póli­tísk vinátta.

Sjall­astuð í HFJ

Heyrðu, svo nýtti þing­flokk­ur Sjálf­stæðis­flokks­ins sér líka blíðuna og skellti sér út á lífið sam­an. Rósa Guðbjarts bauð allri stroll­unni heim í Hafn­ar­fjörðinn þar sem var aðeins skvett úr klauf­un­um og hrist hóp­inn sam­an. Það verða bara all­ir svo ógeðslega kæru­laus­ir í svona hita.

Kristrún með hverja þriggja stiga körf­una

Sann­ur íþrótta­andi hef­ur ein­kennt hæst­virt­an for­sæt­is­ráðherra, K-Frost Jor­d­an, síðustu miss­eri. Hún hef­ur eitt­hvað verið að læra af íþróttatrukkn­um Toggu Gunn og er nú far­in að gefa íþrótta­manns­lega þumla út í all­ar átt­ir þegar henni þykir eitt­hvað vel gert. Æ, þið vitið hvernig þetta er, smá­börn eru eins og svamp­ar sem apa allt upp fólk­inu í nærum­hverfi sínu og verða eins og leir í hönd­un­um á þeim. Svo er hún líka allt í einu kom­in með körfu­bolta­bakt­erí­una sem hef­ur ein­kennt Garðbæ­inga og Sauðkræk­linga und­an­farið. Sjáið þið þetta? K-Frost Jor­d­an með hverja þriggja stiga körf­una á fæt­ur ann­arri.

Snúlli Más­son - framtíðar­nefnd og rúm­fræði

Snúlli Más­son hef­ur komið tví­efld­ur til baka eft­ir að litla krúttið hann Jón Snúlla­son fædd­ist. Nú vill hann að all­ir læri sömu rúm­fræði formúlu og þau Nadine hafa verið að beita til að viðhalda ís­lenska mann­kyns­stofn­in­um, ann­ars erum við í al­gjörri út­rým­ing­ar­hættu. Þaaað má ekki.

Snúlli Más­son átti alls ekki að þurfa að benda á þessa út­reikn­inga held­ur hefði maður haldið að framtíðar­nefnd, með Jón Gn­arr í brúnni, hefði fyr­ir löngu átt að vera búin að vara okk­ur við þessu kyn­orku­leysi sem vof­ir yfir. Bíddu, var Jón Gn­arr ekki að segja í síðustu viku að hann væri sko eng­inn spá­maður? Siggu Kling og Val­g­arði Ein­ars­syni ætti að bjóðast for­mannsstaða framtíðar­nefnd­ar. Það gef­ur auga leið, því­líkt siðleysi. Leggja þessa nefnd niður takk.

Strengja­brúða

Sanna Magda­lena vildi koma mik­il­væg­um skila­boðum á fram­færi í vik­unni þar sem mik­ils mis­skiln­ings gæt­ir stund­um um að hún sé eitt­hvað und­ir hæln­um á Gunn­ari Smára Eg­ils­syni. Hvaða rugl er það? Auðvitað er hún ekk­ert und­ir hæln­um á hon­um neitt, hún hat­ar táfýlu sko.

Þakk­læt­is-Dag­ur

Þakk­læt­is-Dag­ur B. Eggerts okk­ar er vel upp­al­inn og góður dreng­ur og læt­ur iðulega þakk­læti sitt í ljós fyr­ir hvers­deg­in­um. Við segj­um nú bara takk fyr­ir þig elsku Dag­ur.

Pawel á Teni

Pælið í því hvað smá­atriði geta skipt miklu máli. Það munaði bara ein­um bók­staf að sjálfu­kóng­ur­inn okk­ar, Pawel bestil­ing­ur, hefði getað tekið sjálfu á Tene en í staðinn tók hann sjálfu fyr­ir utan veit­ingastaðinn Teni á Blönduósi á dög­un­um. Miklu betra að ferðast inn­an­lands til að halda Kvíði Reyn­is­syni góðum.

Leigu­bíl­ar verða seint þreytt umræðuefni

Þol­in­mæði Ásu Berg­lind­ar er kom­in að þol­mörk­um en hún er orðin langþreytt á leigu­bílaum­ræðunni sem þessi bölvaða stjórn­ar­andstaða get­ur masað um út í eitt. Ég meina, þarf eitt­hvað að ræða þetta? Tek­ur ein­hver ann­ar leigu­bíl nema Villi Árna þegar hann er á leiðinni heim af djamm­inu með Hl­ölla­bát í hægri og veif­andi taxa með vinstri eða tál­beitu-Beggi sem stund­ar það til yndis­auka að setja upp leik­rit í leigu­bíl­um.

Villi Árna tek­ur stund­um leigu­bíl

Bergþór Óla er góð tál­beita

Varaþing­menn gerðu vart við sig

Nokk­ur ný and­lit birt­ust líka á þing­inu í vik­unni. Geðveikt gam­an að kynn­ast nýju og skemmti­legu fólki sem á eft­ir að láta til sín taka fyr­ir land og þjóð. Eða ekki.. Það er all­ur gang­ur á því.

Skvísu­kon­an Diljá Ámunda kom ný inn fyr­ir Viðreisn.

View this post on In­sta­gram

A post shared by Viðreisn (@vi­dreisn)

Aðal­steinn Leifs­son líka en hann þekkja nú marg­ir, mögu­lega einn svip­fríðasti rík­is­sátta­semj­ari sem Ísland hef­ur átt.

Svo kom hin góðhjartaða Karólína Helga líka ný inn fyr­ir Viðreisn.

View this post on In­sta­gram

A post shared by Viðreisn (@vi­dreisn)

Og síðast en ekki síst kom Gísli Stef­áns­son inn fyr­ir Sjálf­stæðis­flokk­inn. Hann ætl­ar ekki að gera Snúlla Más­syni til geðs og taka hamstra­fóðrið á þetta. Hann á nú þegar fjög­ur börn og hef­ur látið staðar numið - þrátt fyr­ir að vera rokk­stjarna! Þetta er svona nýr Ótt­arr Proppé á þingi. Þingmaður á dag­inn, rokk­stjarna á kvöld­in.

Reyk­vík­ing­ur árs­ins!

Já hey, nú er sko verið að leita eft­ir hvunndags­hetju höfuðborg­ar­inn­ar eða Reyk­vík­ingi árs­ins. Veist þú um ein­hvern geggjaðan Reyk­vík­ing? Ég er búin að til­nefna tvo góða; Heiðu Björgu borg­ar­stjóra og heiðvirt­asta borg­ara lands­ins og auðvitað Gísla Martein! Enn ekki hvað. Þau tvo eru lang­bestu íbú­ar Reykja­vík­ur­borg­ar. 

Nýj­asta þátt Spurs­mála má nálg­ast í heild sinni í spil­ar­an­um hér að neðan:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert