Meðferð máls PCC hjá fjármálaráðuneytinu verður flýtt eins og mögulegt er, sagði Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, í samtali við mbl.is að loknum ríkisstjórnarfundi í dag.
Fyrirtækið PCC hefur lagt fram kvörtun til fjármála- og efnahagsráðuneytisins vegna óeðlilegra viðskiptahátta þeirra sem hafa verið að flytja kísilmálm til Íslands og eru því í samkeppni við PCC á markaði. Kvörtunin er til meðferðar í ráðuneytinu.
Engar niðurstöður liggja fyrir í málinu en Daði greindi frá því að verið sé að leita eftir sjónarmiðum eins og stendur sem hópur innan ráðuneytisins mun vinna og koma með niðurstöður úr.
Staða PCC hefur verið til umfjöllunar á mbl.is að undanförnu. 80 starfsmönnum verður sagt upp um miðjan júlí samhliða tímabundinni rekstrarstöðvun, eins og fram kom í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu sem barst í gærkvöldi.
Ákvörðunin var tekin vegna erfiðrar stöðu á mörkuðum fyrir kísilmálm sökum tollastríðs. Þar að auki hefur ódýr innflutningur kísilmálms, sérstaklega frá Kína, áhrif á markaðsverð innanlands.
Sveitarstjóri Norðurþings segir stöðuna slæma fyrir samfélagið. Fyrirtækið sé með stærri fyrirtækjum sveitarfélagsins sem útvegi fjölda fólks vinnu og framleiði góða vöru.