Margrét Hauksdóttir, húsmóðir og fv. ráðherrafrú, varð bráðkvödd í sumarhúsi sínu á Hallandaengjum í Flóa í fyrradag.
Margrét fæddist í Reykjavík þann 3. apríl 1955. Foreldrar hennar voru Jón Haukur Gíslason, bóndi á Stóru-Reykjum í Hraungerðishreppi, og Sigurbjörg Geirsdóttir húsfreyja.
Hún ólst upp á Stóru-Reykjum, gekk í Þingborgarskóla, sem var barnaskóli sveitarinnar, og síðan í Gagnfræðaskólann á Selfossi. Eftir að skólagöngu lauk á Selfossi fór hún í Húsmæðraskólann í Reykjavík.
Eftirlifandi eiginmaður Margrétar er Guðni Ágústsson, fv. alþingismaður og landbúnaðarráðherra. Dætur þeirra eru: Brynja, f. 7. mars 1973, gift Auðuni Sólberg Valssyni, börn þeirra eru Guðni Valur, Salka Margrét og Óliver Tumi; Agnes, f. 20. nóvember 1976, börn hennar eru Freyja og Snorri, faðir þeirra er Guðni Vilberg Björnsson; Sigurbjörg (Sirra), f. 15. apríl 1984, gift Arnari Þór Úlfarssyni, börn þeirra eru Eva, Eik og andvana fæddir tvíburadrengir.
Ævistarf Margrétar á fyrri árum var ýmiss konar þjónustu- og umönnunarstörf á Selfossi og í Reykjavík, og síðar fylgdi hún eiginmanni sínum í embættisstörfum hans.
Systkini Margrétar eru María Ingibjörg Hauksdóttir, Gerður Hauksdóttir, Gísli Hauksson, Vigdís Hauksdóttir og Hróðný Hanna Hauksdóttir.
Margrét og Guðni héldu heimili bæði á Selfossi og í Reykjavík. Þau festu kaup á íbúð í miðbæ Selfoss og bjuggu þar síðustu ár, en voru nýlega flutt aftur til Reykjavíkur þegar hún lést.
Margrét hélt miklu ástfóstri við heimahagana í Flóanum og höfðu þau hjónin komið sér vel fyrir í sumarhúsi á „Engjunum“. Þar átti hún unaðsreit með fólkinu sínu.