Frá og með 1. júní verður ekki lengur hægt að staðgreiða fargjöld með reiðufé um borð í Strætó á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta kemur fram inni á heimasíðu Strætó. Þó á þetta ekki við um landsbyggðarvagna þar sem áfram verður hægt að borga með reiðufé eða greiðslukorti.
Fram kemur á heimasíðunni að úrval greiðslumöguleika hafi aukist og nú sé t.d. hægt að greiða snertilaust með greiðslukorti um borð í öllum vögnum innan höfuðborgarsvæðisins en einungis 2,3% viðskiptavina greiði nú með reiðufé um borð í Strætó.
Í samtali við mbl.is segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, að þau hafi ekki tekið málið sérstaklega fyrir en honum sýnist að verið sé að færa fyrirkomulagið til sama vegar og er víðast hvar í nágrannalöndunum.
„Víða er það þannig að það er aðeins hægt að greiða fyrir almenningssamgöngur með kortum, símtæki eða einhverju slíku. Það er til mikils hægðarauka fyrir vagnstjórann og styttir ferðatímann. Þetta er líka til hægðarauka fyrir flesta farþega,“ segir Breki.
Breki nefnir að Neytendasamtökin hafi lagt fyrirspurn til Seðlabanka Íslands fyrir einhverjum árum sem varðaði skyldu söluaðila vöru og þjónustu að taka við reiðufé.
„Svar Seðlabankans var á þá leið að það væri ekki skylda að taka við reiðufé svo lengi sem einingin sem lægi þar að baki væri íslenska krónan,“ segir Breki.
Hann tekur fram að það séu ýmsar verslanir og þjónustuaðilar sem taka ekki við reiðufé, t.d. ákveðnir skyndibitastaðir og fyrirtæki í póstþjónustu.
„Við hjá Neytendasamtökunum höfum ekki lagst gegn því en við höfum svo sem ekki tekið þetta fyrir. Við teljum samt sem áður að reiðufé sé alltaf nauðsynlegt sem þrautavaraleið ef eitthvað kemur upp á. “