Skilyrðislaus krafa að gíslum verði sleppt

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. mbl.is/Árni Sæberg

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráðherra sótti á dög­un­um leiðtoga­fund í Madríd á Spáni þar sem tveggja ríkja lausn í deil­um Ísra­els og Palestínu var rædd. Fund­ur­inn var liður í und­ir­bún­ingi fyr­ir ráðstefnu sem hald­in verður hjá Sam­einuðu þjóðunum í New York í næsta mánuði.

Þor­gerður seg­ist í sam­tali við Morg­un­blaðið hafa merkt það á fund­in­um að Frakk­ar séu að reyna að stíga skref til þess að viður­kenna sjálf­stæði Palestínu á sama tíma og þeir leggi áherslu á að ríki fyr­ir botni Miðjarðar­hafs tryggi ör­yggi fyr­ir Ísra­el.

Leiðtog­arn­ir horfi til tveggja ríkja lausn­ar til lengri tíma þannig að bæði Palestína og Ísra­el geti lifað sem sjálf­stæðar þjóðir í friði og far­sæld. Hún seg­ir af­stöðu Palestínu­manna þá að unnið verði að tveggja ríkja lausn.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert