Tate-bræður einnig ákærðir í Bretlandi

Bræðurnir Andrew og Tristan Tate.
Bræðurnir Andrew og Tristan Tate. AFP

Andrew Tate og bróðir hans Trist­an Tate hafa verið ákærðir í Bretlandi fyr­ir nauðgun og aðra glæpi.

Sak­sókn­ari sak­ar Andrew í tíu ákæru­liðum um nauðgun, of­beldi gegn þrem­ur kon­um, man­sal og að gera kon­ur út í vændi. Trist­an er sakaður um sömu hluti að vænd­isút­gerð und­an­skildri.

Bræðurn­ir eru fyrr­um af­reks­menn í spark­boxi og hafa farið mik­inn á sam­fé­lags­miðlum þar sem þeir hafa boðað boðskap sem sum­um þykir kven­fjand­sam­leg­ur.

Hand­tekn­ir fyr­ir þrem­ur árum 

Þeir voru hand­tekn­ir og ákærðir í Rúm­en­íu árið 2022 þar sem þeir eru sakaðir um að hafa verið hluti af glæpa­hring sem laðaði til sín kon­ur sem síðar voru mis­notaðar kyn­ferðis­lega.

Andrew er einnig ákærður fyr­ir nauðgun. Þeir eru ekki í varðhaldi en verða að til­kynna sig til lög­reglu með reglu­legu milli­bili þar til að rétt­ar­höld­um kem­ur. 

Verða fram­seld­ir 

Rúm­ensk­ir dóm­stól­ar hafa samþykkt að fram­selja bræðurna til Bret­lands um leið og niðurstaða rétt­ar­hald­anna ligg­ur fyr­ir.

Glæp­irn­ir sem bræðurn­ir eru sakaðir um í Bretlandi eru sagðir hafa gerst á ár­un­um 2012-2015.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert