Tjölduðu í miðbænum og var vísað burt af lögreglu

Fólkinu var bent á hvar á höfuðborgarsvæðinu heimilt er að …
Fólkinu var bent á hvar á höfuðborgarsvæðinu heimilt er að tjalda. mbl.is/Árni Sæberg

Lög­regl­an á höfuðborg­ar­svæðinu hafði af­skipti af fólki sem hafði tjaldað á túni í miðbæn­um, utan merktra tjaldsvæða.

Er lög­reglu bar að garði ræddi hún við mann sem kvaðst hafa sofið í svefn­poka í hengi­rúmi og var hann bú­inn að hengja upp dót til þerr­is. 

Maður­inn hafði ekki vitn­eskju um að það mætti ekki gista á tún­inu og vísaði lög­regl­an hon­um á hvar í höfuðborg­inni hann mætti tjalda. 

Þetta kem­ur fram í dag­bók lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu vegna anna frá 5 í morg­un og til 17 í dag. Fjór­ir voru vistaðir í fanga­klefa lög­reglu á tíma­bil­inu. Alls voru 108 mál skráð í kerfi lög­reglu á tíma­bil­inu. 

Einn var hand­tek­inn vegna lík­ams­árás­ar í heima­húsi. Málið er til rann­sókn­ar lög­reglu en ekki er tekið fram hvar á höfuðborg­ar­svæðinu árás­in átti sér stað. Lög­reglu­stöð 1 sinnti út­kall­inu en hún sinn­ir verk­efn­um í stór­um hluta borg­ar­inn­ar og á Seltjarn­ar­nesi. 

Réðust á dreng og stálu skón­um hans

Í um­dæmi lög­reglu­stöðvar þrjú, sem sinn­ir verk­efn­um í Kópa­vogi og Breiðholti, var ráðist á dreng und­ir lögaldri og skón­um hans stolið.

Í dag­bók­inni seg­ir að vitað sé hverj­ir gerend­urn­ir séu og að málið sé í rann­sókn. Það er unnið með aðkomu barna­vernd­ar. 

Ann­ar maður var hand­tek­inn eft­ir að hafa gengið um og skorið á dekk bif­reiðar. Ger­and­inn hafði flúið vett­vang er lög­reglu bar að garði en hann er einnig grunaður um að hafa valdið eigna­spjöll­um stuttu síðar. Málið er í rann­sókn. 

Lög­regla fjar­lægði einnig skrán­inga­núm­er af nokkr­um öku­tækj­um vegna van­skila á vá­trygg­ingu eða vegna van­rækslu á skoðun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert