Kviknaði í tveimur bílum í Kópavogi

Kviknaði í bílunum í húsagötu í Hjallahverfinu.
Kviknaði í bílunum í húsagötu í Hjallahverfinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Slökkvilið slökkti í nótt eld í tveim­ur bif­reiðum í íbúðagötu í Kópa­vogi. Lög­regla fer með rann­sókn máls­ins.

Lár­us Stein­dór Björns­son, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborg­ar­svæðinu, seg­ir við mbl.is að eld­ur­inn hafi orðið í húsa­götu í Hjalla­hverf­inu en hann seg­ist að öðru leyti ekki geta veitt frek­ari upp­lýs­ing­ar um málið.

Einnig var til­kynnt um eld í felli­hýsi á höfuðborg­ar­svæðinu en eig­and­inn hafði sjálf­ur slökkt hann áður en slökkvilið kom að, að því er fram kem­ur í dag­bók lög­reglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert