Varðhald framlengt á grundvelli almannahagsmuna

Frá aðgerðum lög­reglu í Úlfarsárdal síðasta miðvikudag.
Frá aðgerðum lög­reglu í Úlfarsárdal síðasta miðvikudag. mbl.is/Karítas

Gæslu­v­arðhald yfir manni sem grunaður er um al­var­lega stungu­árás í Úlfarsár­dal hef­ur verið fram­lengt um fjór­ar vik­ur á grund­velli al­manna­hags­muna.

Í síðustu viku var karl­maður um fer­tugt hand­tek­inn og úr­sk­urðaður í viku­langt gæslu­v­arðhald, þá á grund­velli rann­sókn­ar­hags­muna, að kröfu Lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu.

Árás­in átti sér stað um miðjan dag og urðu marg­ir veg­far­end­ur vitni að henni, þar á meðal börn á leið heim úr skóla. Árás­armaður­inn stakk karl­mann á fimm­tugs­aldri í kviðar­hol með stór­um eld­hús­hnífi. Hann var flutt­ur al­var­lega slasaður á spít­ala en er á bata­vegi.

„Gæslu­v­arðhaldið yfir mann­in­um var í gær í Héraðsdómi Reykja­vík­ur fram­lengt um fjór­ar vik­ur, eða til 25. júní, á grund­velli al­manna­hags­muna,“ seg­ir í til­kynn­ingu sem barst frá lög­reglu á tólfta tím­an­um í dag.

Íbúar við Skyggn­is­braut í Úlfarsár­dal eru ótta­slegn­ir yfir því ástandi sem skap­ast hef­ur í hverf­inu og segja að lög­regl­an hafi ít­rekað verið kölluð til og haft af­skipti af sömu mönn­um og voru viðriðnir árás­ina.

Þeir segja að um hóp er­lendra manna sé að ræða og þeir haldi hverf­inu í helj­ar­greip­um með of­beldi og áreitni í garð ná­granna.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert