Landhelgisgæslan fékk ósk um aðstoð við rússneskt fiskveiðiskip sem var að veiðum rétt fyrir utan 200 sjómílna lögsögu Íslands, suðvestur af landinu. Um borð var veikur sjómaður sem þurfti á aðstoð að halda.
Að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, var þyrla og flugvélin TF SIF send í átt að togaranum. Var honum beint inn fyrir lögsöguna svo björgunarferðin myndi verða styttri.
„Við fengum aðstoðarbeiðni frá rússneskum togara sem var að veiðum við Reykjaneshrygg, um að þar væri veikur maður um borð,“ segir Ásgeir.
„Þetta er töluvert löng leið og skipið var því beðið að koma örlítið til móts við land. Við kölluðum út þyrlu og flugvél sökum þess hve ferðalagið er langt. Þyrlan var að lenda á Landspítalanum fyrir skemmstu,“ segir Ásgeir.