Háspennustrengur að Grindavík gaf sig í gær með þeim afleiðingum að bærinn varð allur rafmagnslaus. Búið er að gera við strenginn.
„Það var áverki á strengnum sem gaf sig í gær með þessum afleiðingum,“ segir Sigrún Inga Ævarsdóttir, samskipta- og markaðsstjóri HS Veitna, í samtali við mbl.is. HS Veitur tilkynntu á Facebook kl. 21.25 í gær að búið væri að gera við bilunina.
Bærinn var því án rafmagns í um sex tíma með tilheyrandi áhrif á íbúa og fyrirtæki í bænum.
Sigrún segir ekki vitað hvenær hnjaskið varð á háspennustrengnum, sem liggur um Nesveg austan Grindavíkur, eða hvað olli honum en það sé eðlilegt að slíkt gerist af og til. „Svona getur alltaf komið upp í veitukerfum. Það geta alltaf komið bilanir,“ segir Sigrún.
„Okkar verklag er í rauninni bara þannig að greina bilunina og í þessu tilfelli þá sást að hann hafði orðið fyrir hnjaski, strengurinn. En það er svo sem ekkert óeðlilegt þar sem þessir strengir liggja neðanjarðar.“
Margt hefur gengið á í Grindavík að undanförnu, eins og alþjóð veit; jarðskjálftar, eldgos og bygging varnargarða gætu skýrt áverkann, að sögn Sigrúnar.
En strengurinn hefur verið eina tenging HS Veitna við Grindavík eftir að stofnstrengur skaddaðist í eldsumbrotum síðasta sumar.
„Þess vegna verður allur bærinn rafmagnslaus við þessa bilun,“ bætir Sigrún við.
„Fyrst um sinn hafði þetta áhrif á allt svæðið, þar með talið fyrirtæki sem eru þarna utan við bæinn, fiskeldin. En okkur tókst að koma rafmagni fyrr á fiskeldin, sem eru þarna um Arfadalsleið, en í kjölfarið þurftum við að gera viðgerð á strengnum til að koma rafmagni á bæinn aftur.“