Stefnt er á að baðstaðurinn Laugarás Lagoon í Biskupstungum verði opnaður upp úr miðju sumri.
Til alls er vandað við lónið, sem verður á tveimur hæðum með fossi sem gengt verður um. Á útisvæði verða tvær sánur, köld og heit laug og útisturtur. Þarna verður sömuleiðis veitingastaðurinn Ylja, með grænmeti úr uppsveitum Árnessýslu í hávegum. Baðstaðurinn er hannaður inn í landslagið og frá laugunum er útsýni yfir Hvítá og Iðubrú og til Vörðufells og fram um sveitir.
„Við finnum mikla eftirvæntingu, en við höfum að undanförnu verið að kynna baðstaðinn fyrir fólki í ferðaþjónustunni og fleirum. Svæðið er nú þegar fjölsótt og teljum við að baðlónið og veitingastaðurinn verði góð viðbót á svæðinu, íbúum og ferðafólki,“ segir Bryndís Björnsdóttir hjá Laugarás Lagoon.