15 manns leituðu á bráðamóttökuna eftir tónleikana

Mikill troðningur myndaðist á tónleikunum.
Mikill troðningur myndaðist á tónleikunum. Samsett mynd/mbl.is/Jón Pétur/Aðsend

Um 15 manns hafa leitað á bráðamót­töku Land­spít­al­ans vegna meiðsla eft­ir tón­leika FM95BLÖ í Laug­ar­dals­höll í gær, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Land­spít­ala.

Einn hef­ur verið lagður inn en hann varð und­ir í troðningi og hlaut bein­brot. 

Nokkuð hef­ur verið fjallað um tón­leik­ana sem haldn­ir voru í Laug­ar­dals­höll í gær­kvöldi en afar fjöl­mennt var á tón­leik­un­um. Þegar gert var hlé á tón­leik­un­um skapaðist mik­ill troðning­ur og hafa ein­hverj­ir lýst því að hættu­legt ástand hafi mynd­ast þar sem fólk varð und­ir. 

Einn tón­leika­gest­ur sem mbl.is ræddi við kvaðst hafa ótt­ast um líf sitt og annarra.

Greint var frá því í morg­un að þrír hafi verið flutt­ir af tón­leik­un­um með sjúkra­bíl á sjúkra­hús.

Langt und­ir leyfi­leg­um fjölda

For­svars­menn Nordic Live Events, sem sáu um skipu­lag tón­leik­anna, sendu frá sér til­kynn­ingu fyrr í dag þar sem þeir segja miður að troðning­ur­inn hafi mynd­ast. Seg­ir að allt kapp hafi verið lagt á ut­an­um­hald og að tek­in hafi verið ákvörðun um að tvö­falda gæslu á tón­leik­un­um. 

mbl.is ræddi einnig við Jens Andra Fylk­is­son, eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins Icelandic Secu­rity ehf., sem sá um gæslu á tón­leik­un­um, en hann seg­ir að tón­leika­gest­ir hafi verið langt und­ir há­marks fólks­fjölda í hús­inu en talið er að á bil­inu 9-10.000 manns hafi verið á tón­leik­un­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert