194 MS-ingar brautskráðir í gær

Nemendur útskrifuðust af tveimur námsbrautum.
Nemendur útskrifuðust af tveimur námsbrautum. Ljósmynd/MS

Í gær braut­skráðust 194 stúd­ent­ar frá Mennta­skól­an­um við Sund við hátíðlega at­höfn í Há­skóla­bíó.

Nem­end­ur út­skrifuðust af tveim­ur náms­braut­um: nátt­úru­fræðibraut og fé­lags­fræðabraut. Af nátt­úru­fræðibraut braut­skráðust 73 nem­end­ur, þar af 52 af líf­fræði- og efna­fræðilínu og 21 af eðlis­fræði- og stærðfræðilínu. Af fé­lags­fræðabraut braut­skráðust 121 nem­andi, 45 af fé­lags­fræði- og sögu­línu og 76 af hag­fræði- og stærðfræðilínu.

Dúx skól­ans að þessu sinni var Amel­ía Rós Gils­dorf, ný­stúd­ent af fé­lags­fræði- og sögu­línu, með meðal­ein­kunn 9,46. Semídúx var Matt­hilda Ósk Ólafs­dótt­ir, einnig af fé­lags­fræði- og sögu­línu, með meðal­ein­kunn 9,28.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert