Heimur á heljarþröm: Samtal við Björn Bjarnason

Bóka­klúbb­ur Spurs­mála kem­ur sam­an á Kjar­val til þess að ræða Kúbu­deil­una 1962. Þar mun Björn Bjarna­son eiga sam­tal við Stefán Ein­ar um bók Max Hastings um málið og hvernig sag­an tal­ar inn í sam­tím­ann.

Viðburður­inn fer fram í saln­um Fant­as­íu á Vinnu­stofu Kjar­vals við Aust­ur­völl (gengið inn um Aust­ur­stræti).

All­ir klúbbmeðlim­ir eru meira en vel­komn­ir en skrán­ing á fund­inn fer fram hér.

Hann hefst stund­vís­lega kl. 20:00 en húsið opn­ar klukku­stund fyrr, 19:00. Á Vinnu­stof­unni er hægt að kaupa létt­ar veit­ing­ar á til­boðsverði.

Hægt að gæða sér á dönsk­um snitt­um

Bóka­klúbbur­inn er auk þess í sam­starfi við Jóm­frúna í Lækj­ar­götu og njóta klúbbmeðlim­ir sér­kjara á þeim kvöld­um þegar viðburðir eru. Nauðsyn­legt er að bóka borð af þessu til­efni. Upp­lagt er að setj­ast niður um 18:00 og færa sig svo um sjö leytið yfir á Vinnu­stofu Kjar­vals.

Ný bók í hverj­um mánuði

Bóka­klúbb­ur Spurs­mála hóf göngu sína í apríl síðastliðnum en mark­mið hans er að efla áhuga meðlma á sam­fé­lags­mál­um með lestri góðra bóka. Í hverj­um mánuði er kynnt ný bók til sög­unn­ar sem síðan er fjallað um og til­raun gerð til þess að dýpka skiln­ing þátt­tak­enda á efni henn­ar og inni­haldi.

Í apríl var fjallað um ævi­sögu Geirs H. Haar­de, fyrr­um for­sæt­is­ráðherra. Í maí var um­fjöll­un­ar­efnið hin fyrr­nefnda bók Max Hastings um Kúbu­deil­una og nú hafa klúbbmeðlim­ir tekið til við að lesa hið magnaða verk 1984 eft­ir Geor­ge Orwell.

Bók­in er á sér­stöku til­boðsverði af því til­efni og kost­ar aðeins 2.999 kr. í versl­un­um Penn­ans.

Hér er hægt að skrá sig í Bóka­klúbb Spurs­mála. Þátt­tak­an kost­ar ekk­ert en henni fylgja fríðindi af ýms­um toga, meðal ann­ars aðgang­ur að viðburðum klúbbs­ins.

Klúbbur­inn er starf­rækt­ur í sam­starfi við fjög­ur öfl­ug fyr­ir­tæki. Penn­ann, Sam­sung, Kerec­is og Brim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert