Innviðaráðuneytið gerir ekki athugasemd við að Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, taki sæti í íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkurborgar þó að hann sé tengdur íþróttafélaginu Fylki. Hins vegar er bent á að sveitastjórna sjálfra sé að ákveða um hæfi.
Málið á rætur sínar að rekja til þess þegar skrifstofustjóri borgarstjórnar fjallaði um hæfi Björns í minnisblaði til forsætisnefndar borgarstjórnar 6. mars 2023 en þá taldi skrifstofustjórinn, auk borgarlögmanns, Björn vanhæfan til að sitja í ráðinu.
Innviðaráðuneytið var beðið um álit en honum var meinað að taka sæti í íþrótta- og tómstundaráði árið 2023 vegna starfa sinna sem formaður aðalstjórnar Fylkis. Um er að ræða sjálfboðaliðastarf.
Í skemmstu máli segir í áliti innviðaráðuneytisins að það sé sveitarstjórna sjálfra að meta hæfi kjörinna fulltrúa, og að sú ákvörðun verði að byggja á málefnalegum og lagalegum sjónarmiðum. Þá segir að fyrst og fremst sé horft til þess hvort persónulegir hagsmunir geti haft áhrif á störf borgarfulltrúa. Björn hefur áður vikið af fundum þar sem málefni Fylkis eru til umræðu.
Sjálfstæðismenn lögðu fram bókun í forsætisnefnd borgarstjórnar þann 30. maí þar sem flokkurinn túlkar álit ráðuneytisins þannig:
„Að ekki sé nægjanlegt að vísa til stöðu í sjálfboðastarfi nema sérstakir og verulegir hagsmunir liggi fyrir, sem geta haft áhrif á úrlausn mála. Ekki verður séð að slíkir hagsmunir séu fyrir hendi í tilviki Björns Gíslasonar, sem gegnir ólaunaðri formennsku hjá íþróttafélagi. Ennfremur áréttar ráðuneytið að ekki megi útiloka fulltrúa frá nefndarstörfum nema brýnar og málefnalegar ástæður liggi að baki, og að sérþekking geti einmitt verið ástæða til nefndarsetu.“