Samfélagsmiðlar íslensks stjórnmálafólks eru alltaf undir smásjá og því sem þar fer fram gert skil með reglubundnum og skemmtilegum hætti í Spursmálum. Yfirferðina má sjá í meðfylgjandi myndskeiði eða í rituðu máli hér að neðan.
Litla útstáelsið sem var á fólki í vikunni sem nú er að líða. Um síðustu helgi voru allir og ömmur þeirra á Rottweiler-tónleikum í Laugardalshöll og ekki laust við að nú gangi bæði Rottweiler-flensu- og kynsjúkdómafaraldur manna á milli. Svo mikil var nándin í höllinni. Alls konar klamma klandur og bras á fólki og brjálað að gera á sjúkrastofnunum víðs vegar um land eftir því sem maður best kemst. Sel það ekki dýrara samt sko.
„Hver vill ekki vera eftirlýstur á húð og kyn, sendið manninn einan heim, hann á fullt af peningum, ekki bíp þér með þeim,“ rappa þeir hundarnir og sá sem getur giskað á hvert lagið er fær fimmhundruð kall!
Sanna Magdalena lét sig ekki vanta á tónleika aldarinnar og skemmti sér þar konunglega líkt og stór hluti þjóðarinnar. En þið vitið hversu ósanngjarnt lífið getur verið. Eftirmálar skemmtanahalds einkennast oftast af eftirköstum og almennum leiðindum og hefur elsku Sanna Magdalena aldeilis þurft að borga brúsann síðustu daga þar sem hún hefur steinlegið í Rottweiler-flensunni. Kannski kærkomin flensa og á hárréttum tíma. Þá þarf hún ekki að díla við þetta svitabað þarna í Bolholts svitaholunni á meðan.
Diljá Mist var líka mættust á að sjá mennina sem mótuðu hana á unglingsárunum troða upp í Laugardalshöll. Auðvitað nostalgíaði hún yfir sig og rappaði sig hása, enda kann hún hvern einasta texta utan að.
„Að ég sé *bíp* hahhh það er ekkert nýtt, heldurðu að mamma þín fái að *bíp* frítt? Ég er maðurinn sem brenndi inn í Bjarna Ben á svörtum lista yfir pólitíska öfgamenn, þegar kemur að mér *bíp* jafnvel Barbie framhjá Ken…“
Það ættu náttúrulega að vera tónleikar með Rottweiler-hundum allar helgar. Við Diljá erum alveg sammála um það eins og svo margt annað.
Flensueinkenni og hundar var voðalega fyrirferðarmikið „topic“ á samfélagsmiðlunum í vikunni en fréttir bárust einmitt af því að Jón Pétur Zimsen hafi verið að díla við einhvern flensuskít og ætlað að lina þjáningarnar með Cold Zyme. Einhverju gúrme- stöffi úr apótekinu sem hann keypti sko bara í lausasölu, ekkert uppáskrifað kjaftæði, en í staðinn slafraði hann bara hundameðali í sig og er heppinn að hafa ekki bara algerlega farið í hundana! Það mátti ekki miklu muna þar. Eftir þessa óheppni lagðist hann til hvílu, þó ekki hinstu hvílu samt, ásamt litla loðbarninu. Voffaknús eru svo best.
Inga Sæland var líka að voffast í vikunni og fann barnið í sér þegar hún lék við hundinn Fenri á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Það er spurning hvort Inga taki ekki bara upp á því núna að taka fyrstu skóflustunguna að hjúkrunarheimili fyrir aldraða hunda á næstu misserum. Hún gerir náttúrulega ekki annað þessa dagana en að skima eftir lausum grasblettum fyrir hjúkrunarrými um allar trissur - þráhyggja „much“? Við vitum að þú ert að eldast Inga mín en kommon, þarftu virkilega að eiga svona mörg aðsetur í ellinni?
„Queen“ Ásthildur Lóa „is back to basics“! Ekkert eðlilega gott að sjá hana aftur á þingi - hún ber svo móðurlegan og umhyggjusaman þokka eitthvað. Æ, ég segi nú bara áfram Ásthildur Lóa!
Munið þið þegar allt lék í lyndi hjá Simma Dabba og Obbu? Það voru góðir dagar. Það var hreinn unaður að sjá Gunnlaugsbörnin ganga í takt og fá hvort annað til að brosa og vera bestu útgáfurnar af sjálfum sér. En það er af sem áður var.
Systkinakærleikurinn er runninn út í sandinn og nú munnhöggvast þau lon og don og allan daginn. Obba segir Simma Dabba hafa andúð á útlendingum en sko það er ekki rétt! Hann á fjóra danska vini. Og Simmi segir Obbu elska útlendinga einum of, en það er sko heldur ekki rétt því hún er fyrir löngu búin að skila norska kærastanum. Og komin með þýskan í staðinn? Maður bara skilur ekki neitt hérna! Verið bara vinir og hættið þessu rugli.
Það að vera alþingismamma getur verið „one hell of a job“ og það þekkir María Rut vel. Alls konar starfsdagar bull og vesen í skólakerfinu verða þess oft valdandi að venjulegt vinnandi fólk þarf að finna til foreldrið í sér og vera með uppistand og með því - djísess! Það sem er lagt á fólk sem á börn. En María er svo mikið ofur og tekur börnin einfaldlega bara með í vinnuna. Ekkert verið að flækja málin neitt bara ævintýratúr í mömmuvinnu. Enda ekkert að gera hvort sem er, korter í sumarfrí og svona.
Talandi um að hafa ekkert að gera. Þingmennirnir Guðmundur Ari og Pétur Marteinn, sem er algert „nobody at the moment“ en kom inn á þing í vikunni, svo setjið nafnið á minnið, þeir felluðust mjög mikið í vikunni og spiluðu „ping-pong“ bara svona eins og unglingar í félagsmiðstöð. „Boys will be boys“ er það ekki þannig?
Áreiðanlegasti sjálfukóngur í heimi klikkaði ekki á sjálfunum í vikunni en tók þær reyndar upp á annað „level“ þegar hann tók hlaupasjálfu! Sjálfukóngurinn smellti bara í eitt „síííís“ í hlaupa spandex-gallanum - sjáið hann? Þvílíkur leikmaður!
Nýjasti þáttur Spursmála er aðgengilegur í heild sinni í spilaranum hér að neðan: