Búast má við rigningu af og til í flestum landshlutum í dag. Hvergi er þó búist við mikilli úrkomu. Vindur verður áfram fremur hægur og áttin vestlæg eða breytileg. Hiti verður á bilinu 6 til 13 stig.
Þá stefnir í júníhret fyrripart næstu viku. Í gær voru sendar út viðvaranir vegna þess. Líklegt er að í dag muni viðvörunum fjölga og þeim verði svæðaskipt.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Á morgun gengur í norðan stinningskalda. Búast má við rigningu eða slyddu með köflum á norðanverðu landinu og snjókomu á heiðum og til fjalla.
„Úrkoman mestmegnis í formi rigningar austanlands fram á kvöld, en síðan gæti hún orðið slyddukennd þar. Suðvestantil verður væntanlega engin úrkoma. Það kólnar í veðri og annað kvöld er hita spáð frá frostmarki í innsveitum fyrir norðan, upp í 7 stig við suðurströndina,“ segir í hugleiðingunum.
Á þriðjudag hvessir. Búast má við talsverðri rigningu á láglendi norðan- og austanlands og slyddu eða snjókomu til fjalla. Úrkomuminna verður sunnan heiða. Hiti verður á bilinu 2 til 10 stig, kaldast í innsveitum norðanlands.
„Það stefnir semsagt í júníhret fyrripart næstu viku og í gær var byrjað að senda út viðvaranir vegna þess. Líklegt er að í dag muni fjölga viðvörunum og þeim verði svæðaskipt, en slíkt er gert þegar styttra er í atburðinn og spár verða vissari,“ segir í hugleiðingunum.