Forsvarsmönnum Nordic Live Events, sem sáu um skipulag fermingarveislu FM95Blö í gær, þykir miður að mikill troðningur hafi myndast þegar tónleikagestir fóru samtímis úr salnum í gær. Leyfilegur fjöldi tónleikagesta hafi verið nokkuð færri en leyfi geri ráð fyrir.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nordic Live Events.
Í tilkynningunni segir að við undirbúning tónleikanna hafi verið lagt mikið kapp á allt utanumhald og að tekin hafi verið ákvörðun um að tvöfalda gæslu á tónleikunum.
„Á einum punkti sköpuðust engu síður þær aðstæður að mikill troðningur myndaðist þegar mikill fjöldi gesta hélt samtímis út úr tónleikasalnum til að sækja sér hressingu eða fara á salernið. Einhver tónleikagesta hlutu minni háttar meiðsl. Taka þurfti stjórn á aðstæðum strax - sem tókst á um það bil 20-30 mínútum,“ segir jafnframt í tilkynningunni.
Þrír voru fluttir á sjúkrahús af tónleikunum í gær en mikill troðningur myndaðist og óttuðust einhverjir tónleikagestir um líf sitt og annarra.