Efling kynnir nýja launareiknivél

Efling hefur kynnt nýja launareiknivél sem er aðgengileg á vef …
Efling hefur kynnt nýja launareiknivél sem er aðgengileg á vef félagsins mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stétt­ar­fé­lagið Efl­ing hef­ur kynnt nýja laun­a­r­eikni­vél sem er aðgengi­leg á vef fé­lags­ins á bæði ensku og ís­lensku. Til­gang­ur reikni­vél­ar­inn­ar er sá að fé­lags­menn og launa­greiðend­ur geta reiknað út hvort út­borguð laun þeirra sam­ræm­ist gild­andi kjara­samn­ing­um. Þetta kem­ur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Efl­ingu.

Reikni­vél­in veit­ir einnig upp­lýs­ing­ar og yf­ir­sýn um launa­flokka, túlk­un launa­seðla og rétt­indi starfs­fólks. Fram kem­ur í til­kynn­ingu Efl­ing­ar að mark­mið reikni­vél­ar­inn­ar sé að stuðla að auknu gagn­sæi í kjara- og launa­mál­um. Fé­lagið hvet­ur allt fé­lags­fólk til þess að nýta sér vél­arn­ar og styrkja þannig stöðu sína á vinnu­markaði og vera upp­lýst um eig­in rétt­indi. 

Önnur reikni­vél­in á ár­inu

Efl­ing kynnti aðra reikni­vél fyrr á ár­inu en sú reikni­vél reiknaði or­lof­s­upp­bót og er einnig aðgengi­leg á vef fé­lags­ins.

 „Báðar reikni­vél­arn­ar eru hluti af því um­bóta­verk­efni Efl­ing­ar að gera fé­lags­fólki kleift að fylgj­ast bet­ur með eig­in rétt­ind­um og tryggja að þau séu virt í hví­vetna“, seg­ir í til­kynn­ingu Efl­ing­ar. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert