Fjöldastjórnun í molum: „Mildi að enginn lést“

Víða var pottur brotinn í skipulagi tónleikanna, að mati Böðvars.
Víða var pottur brotinn í skipulagi tónleikanna, að mati Böðvars. mbl.is/Eyþór/Hafsteinn Snær Þorsteinsson

Grunn­hugs­un vantaði í fjölda­stjórn­un við skipu­lagn­ingu ferm­ing­ar­veislu FM95BLÖ í Laug­ar­dals­höll um helg­ina. Stór­hætta var á ferðum og mesta mildi að eng­inn lést.

Þetta seg­ir Böðvar Tóm­as­son, bygg­ing­ar- og bruna­verk­fræðing­ur og fram­kvæmda­stjóri Örugg verk­fræðistofu. Hann hef­ur veitt ráðgjöf í tengsl­um við stór­tón­leika hér­lend­is með flytj­end­um á borð við Just­in Timberla­ke, Just­in Bie­ber, Guns N' Roses, Ramm­stein og Ed Sheer­an.

Um 15 manns þurftu aðhlynn­ingu á bráðamót­töku Land­spít­al­ans eft­ir tón­leik­ana, þar á meðal var einn lagður inn eft­ir að hafa orðið und­ir í troðningi og hlotið bein­brot.

Herra Hnetusmjör tryllti lýðinn.
Herra Hnetu­smjör tryllti lýðinn. Ljós­mynd/​Haf­steinn Snær Þor­steins­son

Kom mjög á óvart

„Það kom mér mjög á óvart að þetta skyldi ger­ast núna," seg­ir Böðvar. Hann bend­ir á öfl­ug um­gjörð hafi verið í kring­um ör­ygg­is­mál og skipu­lag á flest­um af þeim tón­leik­um sem hafi verið í gangi und­an­far­in ár og þeim tón­leik­um sem hann hafi komið að.

„Það sem þarna virðist hafa gerst er að það vant­ar grunn­hugs­un í fólks­fjölda­stjórn­un,” bæt­ir hann við, innt­ur eft­ir áliti á skipu­lagi tón­leik­anna.

Löng biðröð myndaðist fyrir tónleikana.
Löng biðröð myndaðist fyr­ir tón­leik­ana. Ljós­mynd/​Haf­steinn Snær Þor­steins­son

„Eng­in hugs­un“

Hann út­skýr­ir það þannig að ekki sé nóg að vera með fjölda fólks á ör­ygg­is­vakt held­ur þurfi að skil­greina, hugs­an­lega reikna út og stýra öllu ferl­inu í kring­um tón­leik­ana, frá því áður en þeir byrja, á meðan á þeim stend­ur, hvað ger­ist í hlé­um og hvernig flæðið er inn­an tón­leika­svæðis­ins með til­liti til þess hvað er að ger­ast uppi á sviði og ann­ars staðar.

„Það þarf að vera búið að hugsa þetta út í eitt, al­veg til enda. Það sem er al­gjör­lega aug­ljóst í þessu er að það var í raun og veru í prinsipp eng­in hugs­un á bak við þessi atriði,” seg­ir Böðvar og seg­ir greini­legt að tón­leika­hald­ar­arn­ir hafi annað hvort ekki haft reynslu eða skiln­ing á því hvernig heildarör­yggi skuli háttað til að ná utan um þær hætt­ur sem eru til staðar á viðburðum sem þess­um.

Böðvar Tómasson.
Böðvar Tóm­as­son. mbl.is/​Eyþór

Fólk lát­ist í svona aðstæðum

„Við erum með fjölda­mörg dæmi um all­an heim þar sem fólk hef­ur lát­ist í ná­kvæm­lega svona aðstæðum, hvort sem það er uppi við svið eða á svæðum þar sem það er að fara á milli,” grein­ir Böðvar frá.

Hann bend­ir á að mik­il fræði séu á bak við það hvernig stýra skuli stór­um tón­leik­um og hvernig aðstæður og aðgerðir skuli vera á staðnum. Sem dæmi nefn­ir hann að máli skipti hvernig fólki sé hleypt inn og hvernig upp­lýs­ing­um er komið á fram­færi við tón­leika­gesti.

Velt­ir fyr­ir sér leyf­um 

Böðvar tel­ur einnig að rann­saka þurfi á hvaða for­send­um leyfi séu veitt fyr­ir tón­leik­um sem þess­um þar sem alla þekk­ingu virðist vanta á fólks­fjölda­stjórn­un. Heild­ar­end­ur­skoðun þurfi að fara þar fram. Nefn­ir hann að Laug­ar­dals­höll, tón­leika­hald­ar­ar, leyf­is­veit­end­ur og op­in­ber­ir aðilar þurfi að fara í nafla­skoðun á því hvernig hlut­irn­ir gátu farið úr­skeiðis eins og þeir gerðu.  

Prettyboitjokko tók lagið á tónleikunum.
Pretty­boitjok­ko tók lagið á tón­leik­un­um. Ljós­mynd/​Haf­steinn Snær Þor­steins­son

Áhætt­an ligg­ur í frá­vik­un­um

Ísleif­ur B. Þór­halls­son tón­leika­hald­ari var harðorður í garð tón­leika­hald­ara í viðtali við mbl.is í gær og benti á ým­is­legt sem mátti bet­ur fara, þar á meðal að skipta hefði mátt tón­leika­saln­um í hólf þar sem úti­svæði fylgdi hverju og einu þeirra. Einnig nefndi hann aukna ör­ygg­is­gæslu og betri loftræst­ingu fyr­ir svona mik­inn fólks­fjölda.

Lögreglubíll fyrir utan Laugardalshöll.
Lög­reglu­bíll fyr­ir utan Laug­ar­dals­höll. Ljós­mynd/​Haf­steinn Snær Þor­steins­son

Böðvar seg­ir Ísleif hafa komið með marga mik­il­væga punkta en seg­ir málið enn stærra en kom fram í viðtal­inu við hann.

„Til að tryggja ör­yggið þarf bæði út­færsl­an og skipu­lagið að vera í lagi og hugsað út frá heild­ar­funksjón­inni á þess­um viðburði. Því tengj­ast ein­mitt praktísk og raun­veru­leg atriði sem eru á staðnum,” seg­ir hann og nefn­ir þar bæði skipu­lag, sam­ráð og sam­skipti við stýr­ingu á viðburðinum.

Auddi og Steindi.
Auddi og Steindi. Ljós­mynd/​Haf­steinn Snær Þor­steins­son

Hugs­un virðist hafa vantað um hvernig skyldi bregðast við ef eitt­hvað færi úr­skeiðis.

„Það er mjög auðvelt að hugsa um ör­yggi og halda að allt sé í lagi og lít­il áhætta ef ekk­ert fer úr­skeiðis og allt er inn­an þess ramma sem menn vænta og von­ast til. Áhætt­an ligg­ur ein­mitt í þess­um frá­vik­um og það er því rosa­lega mik­il­vægt að hafa þekk­ingu og reynslu í því að geta tæklað allt þetta líka ef eitt­hvað ger­ist en stóra málið er að það séu þekk­ing, grein­ing og út­færsl­ur sem tækla þessa áhættu fyr­ir­fram,” grein­ir hann frá.

Gera þurfi meiri kröf­ur til þeirra sem taki þá ábyrgð á sig að stýra svona stór­um tón­leik­um, enda áhætt­an gíf­ur­lega mik­il. Mjög víða í sam­fé­lag­inu sé pott­ur brot­inn vegna þess að litið sé afar létt­vægt á áhættu af viðburðum sem þess­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert