Karl og kona frá Spáni hafa verið ákærð fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa í febrúar saman flutt inn samtals 8,4 lítra af kókaínbasa með 44-45% styrkleika. Kom fólkið með efnin í flugi frá Mílanó á Ítalíu.
Í ákæru málsins, sem þingfest var í Héraðsdómi Reykjaness í síðasta mánuði, kemur fram að fólkið hafi verið með efnin falin í tveimur farangurstöskum. Fyrst hafi fólkið skilið töskurnar eftir í töskusal flugstöðvarinnar, en síðar komið aftur og ætlað að fá töskurnar afhentar, en þá verið handtekin af lögreglu.
Maðurinn er fimmtugur en konan er 39 ára, en sem fyrr segir eru þau bæði ríkisborgarar Spánar.
Eins og mbl.is fjallaði um um helgina stefnir í metár þegar kemur að haldlögðu magni kókaíns á Keflavíkurflugvelli. Sagði lögreglufulltrúi hjá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum, sem fer fyrir rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi, að marktæk aukning væri í slíkum málum.
Það sem af er ári hefur lögreglan þegar lagt hald á 40,26 kíló af kókaíni á flugvellinum.