Segir BLÖ-strákana hafa staðið sig vel

Auddi á opnunaratriði FM95BLÖ.
Auddi á opnunaratriði FM95BLÖ. Ljósmynd/Hafsteinn Snær Þorsteinsson

FM95BLÖ strák­arn­ir, Auddi, Steindi og Eg­ill, stóðu sig að mestu leyti mjög vel með und­ir­bún­ing­inn fyr­ir tón­leik­ana á laug­ar­dags­kvöldið.

Þetta seg­ir Birg­ir Bárðar­son, fram­kvæmda­stjóri Íþrótta- og sýn­inga­hall­ar­inn­ar hf., rekstr­araðila Laug­ar­dals­hall­ar, í sam­tali við mbl.is.

„Auðvitað má alltaf gagn­rýna það. Þú ert alltaf vit­ur eft­ir á,“ seg­ir Birg­ir. Margt megi þó læra af kvöld­inu, herða og bæta.

Auddi og Steindi á sviðinu í höllinni.
Auddi og Steindi á sviðinu í höll­inni. Ljós­mynd/​Haf­steinn Snær Þor­steins­son

„Tryggja að slíkt ger­ist ekki aft­ur“

„Verk­ferl­arn­ir eru í góðum mál­um og þeim var öll­um fylgt en þarna myndaðist fólks­stýr­ing­ar­vanda­mál sem olli al­veg hræðileg­um viðburði í and­dyr­inu,“ seg­ir Birg­ir. Mik­il vinna hafi átt sér stað síðustu daga, meðal ann­ars við áhorf á upp­tök­ur úr mynda­vél­um til að greina aðstæður enn bet­ur.

„Hvað fór fram, hvað gerðist, af hverju gerðist þetta. Í von um að tryggja að slíkt ger­ist ekki aft­ur.“

Seg­ir hann nýtt fyr­ir­komu­lag um aðkomu viðburða hafa verið þróað í kjöl­far at­b­urða laug­ar­dags­kvölds­ins. Herða eigi á öll­um þátt­um og það tryggi von­andi að hægt sé að al­hæfa að allt verði í lagi héðan af. Von­ast Birg­ir til þess að þeir þætt­ir sem hann breyt­ir hjá sér verði líka lagaðir í öðrum hús­um, „þannig að þetta verði öll­um til hjálp­ar“.

„Við höld­um bara áfram að vinna þetta og von­andi get ég gefið ná­kvæm­ari upp­lýs­ing­ar frá mér á næst­unni. Ég vona að fólk gefi því skiln­ing að það tek­ur tíma.“

„Það telst ekki mikið á tón­leik­um“

Spurður út í loft­gæði og loftræst­ing­ar­kerfi hall­ar­inn­ar seg­ist Birg­ir hafa bætt loftræst­ing­una fyr­ir tón­leik­ana og hún hefði því verið í ágæt­is mál­um.

„Við erum með mæla og meðal­hit­inn í tveggja metra hæð var 22 gráður. Það telst ekki mikið á tón­leik­um.

Hins veg­ar, ef þú ert í ban­astuði og hleyp­ur inn í fjöld­ann þá máttu al­veg bú­ast við því að finna hita frá næstu mann­eskju, þannig að þér get­ur fund­ist miklu heit­ara en það er í raun,“ seg­ir Birg­ir, þetta auk­ist einnig þegar neytt sé áfeng­is.

„All­ir þess­ir hlut­ir, sem tengd­ust loft­gæðum og hita, það gekk allt eft­ir. Það var allt í ferli. Það eina sem brotnaði var stýr­ing.“

Egill á opnunaratriði FM95BLÖ.
Eg­ill á opn­un­ar­atriði FM95BLÖ. Ljós­mynd/​Haf­steinn Snær Þor­steins­son

Ein­ung­is sögu­sagn­ir um að gest­ir hefðu pissað á gólfið

Birg­ir leiðrétt­ir að tón­leika­gest­ir hefðu ekki verið 10.000 tals­ins, raun­ar hefðu þeir verið um 8.600, miðað við þær töl­ur sem hann hef­ur fengið.

„Við höf­um leyfi fyr­ir 11.000 manns að koma inn í húsið. Við ger­um ráðstaf­an­ir sem taka á þessu en þarna fóru ein­hver öfl í gang sem urðu að mót­stöðunni í tröpp­un­um. Sem bet­ur fer fór þetta bet­ur.“

Á Face­book-hópn­um beauty tips hafa not­end­ur sagt frá því að aðgengi að sal­ern­um hefði verið nógu slæmt að ein­hverj­ir tón­leika­gest­ir hefðu pissað á gólfið. Þetta seg­ir Birg­ir ein­ung­is sögu­sagn­ir sem hann hef­ur ekki enn fengið staðfest­ar.

„Við vor­um með 22 manna lið í hrein­gern­ing­um og eng­inn þeirra hef­ur sagt nokkuð um það. Það var hluti af því að tryggja ör­yggi að taka eins mikið til og hægt var, að byggja ekki upp ein­hver svæði sem yrðu hættu­leg.“

Voru sem sagt nógu mörg sal­erni, að þínu mati, fyr­ir 8.600 manns?

„Sko, nú erum við að tala aðeins um tíma­lengd líka. Þarna hefði alltaf mátt bæta inn í. Það fer ekk­ert á milli mála. Það var bætt við útisal­ern­um en Laug­ar­dals­höll er með 134 sal­ern­isaðstöður í hús­inu. Síðan má rýna í það hvernig dreif­ing­in er og hvernig tíma­lengd­in er. Þetta er það sem við erum að greina.“

Spurður hvort þess­ar 134 sal­ern­isaðstöður séu all­ar opn­ar al­menn­ingi svar­ar Birg­ir að mögu­lega séu fjór­ar þeirra aðeins ætlaðar starfs­fólki húss­ins.

Höll­in get­ur tekið 11.000 manns

Þegar þú seg­ir að það sé leyfi fyr­ir 11.000 manns í hús­inu, áttu þá við þegar öll höll­in er notuð?

„Þá er gert ráð fyr­ir 11.000 manns inni í sýn­inga­höll­inni, þar sem sjálf­ir tón­leik­arn­ir voru.

Gamla höll­in, eins og við köll­um hana – þar sem mat­ur­inn var – hún hef­ur leyfi fyr­ir 5.500 manns og sýn­inga­höll­in get­ur tekið 11.000 manns, en ekki á sama tíma.“

Fjöldi tónleikagesta var um 8.600 manns.
Fjöldi tón­leika­gesta var um 8.600 manns. Ljós­mynd/​Haf­steinn Snær Þor­steins­son

Örygg­is­fyr­ir­tækið „alltaf staðið sig hingað til“

Hafið þið reynslu af ör­ygg­is­fyr­ir­tæk­inu Icelandic Secu­rity ehf.?

„Já, við höf­um það. Hann hef­ur alltaf staðið sig hingað til. Þegar við tók­um talið í upp­hafi þá treysti ég hon­um til að sinna sínu starfi al­veg eins og hann hef­ur gert.“

Heim­ild­ir mbl.is herma að skil­ríki hafi ekki verið skoðuð við inn­gang­inn og að ekki hefði verið leitað nægi­lega vel á gest­um við inn­komu á tón­leik­ana, en tveir voru hand­tekn­ir á laug­ar­dags­kvöldið á grun um vopna­b­urð.

Seg­ist Birg­ir ekki ætla að full­yrða um hvernig ferlið fór fram en það sé annað sem hann eigi eft­ir að rýna í og „fara í gegn­um hvern ein­asta þátt“.

„Við erum það hús sem hef­ur mesta reynslu í stóru viðburðahaldi. Starfs­fólkið okk­ar hef­ur gríðarlega reynslu. Ég sjálf­ur hef unnið við þetta í fimmtán ár. Ég óska eng­um að lenda í þessu.“

„Hér voru all­ir á tán­um“

Birg­ir ít­rek­ar að mörg önn­ur atriði hefðu verið í lagi þegar troðning­ur­inn var í gangi. Um 7.000 manns hefðu þá verið inni í saln­um og ekki orðið var­ir við að nokkuð hefði komið upp á.

„Það var gert hlé á dag­skránni. Næsta atriði var ekki sett í gang fyrr en það var búið að tryggja að það væri búið að leysa úr þessu. Þetta eru allt verk­ferl­arn­ir sem komu í gegn­um mig og minn aðstoðarmann sem var á staðnum.

Hefði því ekki verið fylgt – og þeim verk­ferl­um sem við, ég, lög­regl­an, slökkviliðið og yf­ir­maður gæsl­unn­ar, tók­um fund um strax eft­ir at­vikið á laug­ar­dags­kvöldið – hefði þetta getað farið verr. Hér voru all­ir á tán­um.“

Þá seg­ir Birg­ir ekki tíma­bært að segja hvað það er ná­kvæm­lega sem hefði mátt fara bet­ur í und­ir­bún­ings­ferl­inu, „það á svo margt eft­ir að koma í ljós og mikið að fara yfir“.

„Við höfðum frá­bært sam­starf bæði við lög­reglu og slökkviliðið og með þeirra aðkomu þá náðum við stjórn á þessu.“

„Við höfðum frábært samtarf bæði við lögreglu og slökkviliðið og …
„Við höfðum frá­bært samtarf bæði við lög­reglu og slökkviliðið og með þeirra aðkomu þá náðum við stjórn á þessu,“ seg­ir Birg­ir. Ljós­mynd/​Haf­steinn Snær Þor­steins­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert