Sofandi í runna

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þrír voru  hand­tekn­ir vegna gruns um brot á lög­reglu­samþykkt. Þeir áttu það all­ir sam­eig­in­legt að vera í mjög ann­ar­legu ástandi og voru þeir all­ir vistaðir í fanga­klefa. 

Þetta er meðal þess sem kem­ur fram í dag­bók lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu vegna verk­efna frá klukk­an 17 í gær til 5 í morg­un. Alls eru 66 mál skráð í kerf­inu á um­ræddu tíma­bili og gista fimm í fanga­klefa.

Til­kynnt var um mann sof­andi í runna. Hann var vak­inn og ekið í skjól. Þá var til­kynnt um aðila sem var að banka á hurðir en til­kynn­andi kannaðist ekki við aðilann. Lög­regla fór á staðinn og kannaði málið.

Þá hafði lög­regl­an af­skipti af nokkr­um öku­mönn­um, ým­ist vegna gruns um akst­ur und­ir áhrif­um áfeng­is eða fíkni­efna, fyr­ir of hraðan akst­ur og fyr­ir að aka án öku­rétt­inda. Þá var ökumaður sektaður fyr­ir að aka á nagla­dekkj­um og tveir fyr­ir að nota farsíma und­ir stýri.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert