Stefndi alltaf að því að standa sig vel

Inga Júlíana Jónsdóttir, dúx Verslunarskóla Íslands, ásamt Guðrúnu Ingu Sívertsen …
Inga Júlíana Jónsdóttir, dúx Verslunarskóla Íslands, ásamt Guðrúnu Ingu Sívertsen skólameistara. Ljósmynd/Arnaldur Halldórsson

„Nei, ég átti eig­in­lega alls ekki von á því að verða dúx,“ seg­ir Inga Júlí­ana Jóns­dótt­ir, ný­stúd­ent úr Versl­un­ar­skóla Íslands, sem er sem dúx skól­ans með 9,67 í aðal­ein­kunn.

Inga fagn­ar áfang­an­um nú með skóla­fé­lög­um sín­um í út­skrift­ar­ferð á Krít

Inga seg­ist ekki vita hver lyk­ill­inn að þess­um ár­angri sé. Hún hafi alltaf lagt hart að sér en hafi þó tekið meðvitaða ákvörðun um að hugsa ekki út í það þetta skóla­árið að vera með hæstu ein­kunn­ina.

Hún seg­ist hafa stefnt að því að standa sig vel í öll­um áföng­um sem hún skráði sig í, þótt þeir hafi verið mis­skemmti­leg­ir, og vildi vera sátt við þá vinnu sem hún lagði í áfang­ann.

Hún seg­ist ekki hafa setið öll­um stund­um við lest­ur þó hún hafi lagt hart að sér. Hún tók þátt í fé­lags­líf­inu og mætti á viðburði sem voru haldn­ir, „ég sat ekki við skrif­borðið öll föstu­dags­kvöld“.

Fólkið og jafn­vægið standi upp úr

Hún seg­ir það hafa staðið upp úr mennta­skóla­göng­unni að kynn­ast vin­kon­um sín­um.

„Ég kynnt­ist ynd­is­leg­um stelp­um og er mjög hepp­in,“ seg­ir hún.

Það standi þó einnig upp úr hjá henni að hafa náð að koma á góðu jafn­vægi milli þess að leggja hart að sér í nám­inu og að ná að njóta þess að vera í mennta­skóla og lifa líf­inu.

Inga stefn­ir á nám í lög­fræði við Há­skóla Íslands í haust. Hún fékk áhuga á lög­fræðinni í lög­fræðiáfanga í skól­an­um og það var nóg til að heilla hana.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert