Appelsínugular og gular viðvaranir vegna veðurs eru á öllu landinu í dag. Þær tóku gildi ýmist í nótt eða taka gildi með morgninum og þegar líður á daginn. Veðurstofa Íslands hefur bætt höfuðborgarsvæðinu við en gul viðverðum vegna norðan hvassviðris tekur gildi klukkan 8.
Á Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi, Austfjörðum og á Suðausturlandi eru appelsínugular viðvaranir í gildi vegna norðan storms og hríðar og þá má búast við auknu afrennsli og vatnavöxtum sem eykur hættu á flóðum og skriðuföllum sökum mikillar rigningar.
Veðurspáin fyrir daginn er ekki beint sumarleg en í dag verður norðan 13-23 m/s, hvassast í vindstrengjum sunnanlands. Snjókoma eða slydda verður á Norður-og Austurlandi en þar hlýnar þegar líður á daginn með talsverðri rigningu á láglendi. Það verður úrkomuminna sunnan heiða. Það fer að draga úr vindi á landinu seint í dag. Hitinn verður á bilinu 3 til 9 stig síðdegis.
Á morgun verður norðan 10-18 m/s, en 8-15 m/s seinni partinn. Rigning verður um landið norðanvert með hita á bilinu 2 til 7 stig en sunnanlands verður þurrt að kalla og hitinn þar verður 7 til 12 stig.