Blaut tuska í andlitið í afmælisgjöf

Frá tjaldsvæðinu á Víðistaðatúni.
Frá tjaldsvæðinu á Víðistaðatúni. Ljósmynd/Hafnarfjarðarbær

Hafna­fjarðarbæj­ar hef­ur ein­hliða sagt upp starfs­samn­ingi við Skáta­fé­lagið Hraun­búa. Ástæðan fyr­ir því er ágrein­ing­ur um viðhald á tjaldsvæði Hafn­ar­fjarðar sem skáta­fé­lagið hef­ur séð um í yfir 30 ár.

Bjarni Freyr Þórðar­son, fé­lags­for­ingi skáta­fé­lags­ins, seg­ir í sam­tali við mbl.is að þetta hafi mik­il áhrif á rekst­ur og starf­semi fé­lags­ins, en fé­lagið fagn­ar ein­mitt stóraf­mæli á þessu ári.

Al­var­leg­ar ásak­an­ir um ábyrgð á tjóni

Bjarni seg­ir skýrt tekið fram í samn­ingn­um að viðhald skuli greitt miðað við eign­ar­hlut og þá af eig­anda sem sé Hafn­ar­fjarðarbær. Samn­ingaviðræður voru í gangi um viðhald en upp kom ágrein­ing­ur um þetta atriði.

Í stað þess að farið væri í samn­ingaviðræður var stóra samn­ingn­um sagt upp, með til­heyr­andi áhrif­um á skát­a­starfið að sögn Bjarna.

Það varð tjón á grasi tjaldsvæðis­ins í fyrra, sem rekja má til rign­ing­ar­sum­ars­ins sem þá var. Bjarni seg­ir að garðyrkju­stjóri og æsku­lýðsfull­trúi séu nú að reyna að klína því tjóni yfir á skáta­fé­lagið.

„Þeir halda því fram að þetta sé ábyrgðarleysi hjá okk­ur að koma ekki í veg fyr­ir þess­ar skemmd­ir með ein­hverj­um hætti,“ seg­ir Bjarni. Hann seg­ir þetta al­var­leg­ar ásak­an­ir.

„Það er verið að segja samn­ingn­um upp vegna ástæðu sem er ekki til staðar,“ seg­ir Bjarni. Hann von­ast til þess að þessi ákvörðun verði aft­ur­kölluð.

Hef­ur mik­il áhrif á starf­semi

Bjarni seg­ir samn­ing­inn vera til­kom­inn til þess að efla skát­astarf en ekki bara fyr­ir viðhald á tjaldsvæði. Samn­ing­ur­inn skil­ar auka­leg­um 9 millj­ón­um í rekst­ur fé­lags­ins sem kem­ur ein­ung­is af tjaldsvæðinu.

Það er nán­ast tvö­föld­un á tekj­um sem koma frá rekstr­ar­samn­ingi við bæ­inn. Bjarni seg­ir hverja krónu fara beint í skát­a­starfið og hef­ur rekst­ur fé­lags­ins tekið mið af þess­um tekj­um í um 35 ár. 

„End­ur­spegli dýpri vanda í stjórn­sýslu bæj­ar­ins“

Bjarni seg­ir í grein sem hann skrifaði á vef skáta­fé­lags­ins, að samn­ing­ur­inn sé grund­völl­ur fyr­ir öfl­ugu æsku­lýðsstarfi í bæn­um. 

„Ákvörðunin sýn­ir í verki hvernig full­trú­ar bæj­ar­ins standa hrein­lega í vegi fyr­ir upp­bygg­ingu æsku­lýðsstarfs í bæn­um,“ seg­ir í grein Bjarna.

Bjarni grein­ir einnig frá því í sam­tali við mbl.is að málið hafi ekki farið í eðli­leg­an far­veg í stjórn­sýslu Hafn­ar­fjarðar. Frí­stunda og tóm­stunda­nefnd hafi átt að taka upp­sögn­ina til um­fjöll­un­ar í sein­ustu viku en í millitíðinni hafi starfsmaður bæj­ar­ins ákveðið að segja samn­ing­um upp sjálf­ur. „Málið fór því ekki í það ferli sem það átti að fara í,“ seg­ir Bjarni.

Bjarni seg­ir Skáta­fé­lagið Hraun­búa ósátt við starfs­fólk Hafna­fjarðarbæj­ar og seg­ir þessa ákvörðun aðför að rekstri fé­lags­ins. 

Skáta­fé­lagið Hraun­búi fagn­ar í ár 100 ára af­mæli og hef­ur í um 35 þeirra séð um viðhald tjaldsvæðis­ins. Seg­ir hann því um blauta tusku í and­litið að ræða á af­mæl­inu.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert