Fær 147 milljónir í bætur eftir vinnuslys

Stefnandi lamaðist í vinnuslysinu, hann er 34 ára frá Litáen.
Stefnandi lamaðist í vinnuslysinu, hann er 34 ára frá Litáen. mbl.is/Karítas

Sjóvá ber að greiða litáísk­um manni tæp­ar 147 millj­ón­ir króna eft­ir hræðilegt vinnu­slys. Maður­inn lamaðist þegar bíl­hræ féll á hann að störf­um ofan í járntæt­ara. Þetta er niðurstaða héraðsdóms.

Sjóvá hafði þegar greitt mann­in­um tæp­ar 48 millj­ón­ir þannig að upp­hæðin hef­ur nú rúm­lega þre­fald­ast með dómi héraðsdóms.

Lamaðist við slysið

Maður­inn starfaði hjá málm­end­ur­vinnsl­unni Furu og stóð í viðgerðum neðst í rennu sem leiðir að valsi í járntæt­ara. Á meðan maður­inn var þar setti krana­stjórn­andi bíl­hræ í renn­una, með þeim af­leiðing­um að stefn­andi fest­ist und­ir bíl­hræ­inu. 

Maður­inn sem er nú 34 ára, hlaut al­var­leg­an mænuskaða og er í dag í hjóla­stól, háður aðstoð við nær all­ar dag­leg­ar at­hafn­ir. 

Fjár­tjónið bætt að fullu

Maður­inn stefndi Sjóvá þar sem hann taldi fjár­tjón fyr­ir var­an­lega ör­orku og lyfja- og sjúkra­kostnað ekki bætt að fullu.

Laun stefn­anda til fram­búðar voru óljós. Maður­inn flutti til Íslands 2019, sama ár og slysið varð. Hann hækkaði í laun­um við kom­una til lands­ins.

Ágrein­ing­ur var um hvort tek­in yrðu sam­an laun stefn­anda hér­lend­is eða í Litáen við út­reikn­ing á bót­um. 

Í dóm­in­um seg­ir að maður­inn hafi ætlað að búa hér á landi til fram­búðar. Því ættu laun hans á Íslandi að gefa rétt­asta mynd af þeim laun­um sem hann hafi orðið af. 

Héraðsdóm­ur féllst á máls­ástæður stefn­anda og kröf­ur hans. Sjóvá ber að greiða mann­in­um 146.573.270 krón­ur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert