Fara fram á áframhaldandi varðhald í Arnarnesmáli

Konan hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 16. apríl.
Konan hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 16. apríl. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Miðlæg rann­sókn­ar­deild lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu mun í dag fara fram á áfram­hald­andi gæslu­v­arðhald yfir konu sem er grunuð um aðild að and­láti föður síns í Súlu­nesi í Arn­ar­nesi í apríl síðastliðnum.

Kon­an, sem er sú eina sem er með stöðu sak­born­ings, hef­ur setið í gæslu­v­arðhaldi frá 16. apríl en gæslu­v­arðhalds­úrsk­urður yfir henni á að renna út í dag.

Ævar Pálmi Pálma­son, aðstoðar­yf­ir­lög­regluþjónn hjá lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu, sagði í sam­tali við mbl.is í gær að rann­sókn máls­ins sé á loka­metr­un­um.

Maður­inn sem lést hét Hans Roland Löf og var fædd­ur árið 1945. Hann var bú­sett­ur í Súlu­nesi ásamt eig­in­konu sinni og dótt­ur þeirra, Mar­gréti Höllu Hans­dótt­ur, sem sit­ur í gæslu­v­arðhaldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert