Þegar Hermann Guðmundsson, nýstúdent frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ, fékk einkunnina 0 á sínu fyrsta prófi við skólann bjóst hann ekki við því að hann myndi verða dúx skólans með 9,6 í meðaleinkunn.
Fékk Hermann einnig fjölda verðlauna í öðrum greinum fyrir góðan námsárangur.
Hermann lagði mikið á sig í lærdómnum en hann æfir einnig fótbolta með Breiðabliki. Að sögn hans er skipulag lykillinn að góðu jafnvægi.
„Ég lærði ansi mikið en ég reyndi að vera með jafnvægi milli lærdómsins og frítíma. Það kom stundum niður á svefninum ef ég ætlaði að læra mikið, hreyfa mig og hitta vini mína.“
Á fyrsta prófi Hermanns í FG fékk hann núll í einkunn. Var það stafsetningarpróf í íslensku en Hermann er haldinn lesblindu.
„Ég kolféll á því prófi. Kennarinn fór ekki einu sinni yfir allt prófið. Ég spurði hvers vegna engar villur væru á blaðsíðu tvö og þrjú, þá sagði hún að ég hefði þegar verið kominn með núll. Það var ákveðinn skellur,“ segir Hermann.
Eftir seinni önnina á öðru ári fékk Hermann betri einkunnir og við það lagði hann enn meira á sig. Hann segist hafa tekið sig taki og ákveðið að taka námið alvarlega.
Hermann stefnir á nám í stjórnmálafræði en hann hefur þó ekki tekið ákvörðun enn sem komið er.