Gæsluvarðhald yfir konunni sem grunuð er um aðild að andláti föður síns í Súlunesi í Arnarnesi hefur aftur verið framlengt um fjórar vikur, eða til 1. júlí, á grundvelli almannahagsmuna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
Konan er sú eina með stöðu sakbornings í málinu. Hún hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 16. apríl og átti gæsluvarðhaldsúrskurður yfir henni að renna út í dag.
Greint var frá því fyrr í dag að miðlæg rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu myndi fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir konunni, sem