Harmar mjög það sem gerðist

Björgvin Þór Rúnarsson.
Björgvin Þór Rúnarsson.

Eig­andi Nordic Live Events harm­ar mjög þar sem gerðist í Laug­ar­dals­höll um helg­ina þegar fólk lenti und­ir í troðningi og um 15 manns fóru á bráðamót­töku Land­spít­al­ans. Eig­and­inn von­ar jafn­framt að at­vikið verði fyr­ir­tæk­inu lær­dóms­ríkt.

Fara ít­ar­lega yfir aðstæðurn­ar

„Það verður farið ít­ar­lega yfir þær aðstæður sem sköpuðust, með það að mark­miði að koma í veg fyr­ir að slíkt end­ur­taki sig. Í aðdrag­anda tón­leik­anna voru haldn­ir fund­ir með lög­reglu og slökkviliði, en þrátt fyr­ir það sá eng­inn fyr­ir þær aðstæður sem sköpuðust,” seg­ir Björg­vin Þór Rún­ars­son í til­kynn­ingu.

Í fyrri til­kynn­ingu Nordic Live Events á sunnu­dag kom fram að fyr­ir­tæk­inu þætti miður að troðning­ur hefði mynd­ast. 

Auddi og Steindi á tónleikunum.
Auddi og Steindi á tón­leik­un­um. Ljós­mynd/​Haf­steinn Snær Þor­steins­son

Von­andi hægt að gera bet­ur næst

Fram kem­ur í til­kynn­ing­unni sem var birt í morg­un að von­andi verði at­vikið til þess að hægt verði að gera enn bet­ur í framtíðinni. Einnig seg­ir Björg­vin Þór að hann muni á morg­un funda, ásamt fleir­um, með rýni­hóp lög­reglu og slökkviliðs þar sem farið verður yfir það sem fór úr­skeiðis og hvað má bæta.

„Nordic Live Events sá al­farið um skipu­lagn­ingu og fram­kvæmd þessa viðburðar og ör­ygg­is­gæsl­an var í hönd­um Icelandic Secu­rity. Auddi, Steindi og Eg­ill komu að markaðsmá­l­um og und­ir­bún­ingi tón­leik­anna,” seg­ir hann í til­kynn­ing­unni.

„Verði okk­ur lær­dóms­ríkt“

„Sem eig­andi Nordic Live Events harmi ég mjög það sem gerðist og vona inni­lega að þetta at­vik verði okk­ur lær­dóms­ríkt. Mark­miðið er að gera næstu stóru viðburði, sem haldn­ir verða í Frjálsíþrótta­höll­inni, enn betri fyr­ir alla gesti.”

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert