„Ég var dugleg að læra en það var ekki það eina sem ég gerði,“ segir Amelía Rós Gilsdorf, nýstúdent frá Menntaskólanum við Sund. Amelía varð dúx skólans með 9,46 í meðaleinkunn.
Amelía segist ekki hafa átt von á því að verða dúx og að það hafi komið á óvart. „Ég vissi að ég ætti möguleika á því en ég bjóst aldrei við því að það myndi vera ég“, segir hún.
Amelía segir jafnvægi milli námsins og félagslífsins vera lykilinn að velgengni. Hún segir það hafa skipt máli að vera dugleg að sinna náminu og læra en einnig að taka þátt í félagslífinu eins og hún vildi.
Hún sagði þó einnig að lykillinn væri að læra það sem maður hefur áhuga á. „Ég hef áhuga á sögu og félagsfræði og ákvað að læra það þannig að mér fannst bara gaman að læra,“ segir Amelía.
„Fólkið í kringum mig í MS,“ segir Amelía vera það sem stendur upp úr menntaskólaárunum. Hún segist hafa kynnst góðum vinkonuhópi og að þær væru duglegar að hvetja hver aðra áfram í náminu.
Amelía segist stefna á lögfræðinám í háskóla strax í haust og horfir spennt á haustið sem fram undan er.