Ósamræmi muni bitna á nemendum

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 1:15
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 1:15
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
  • default, selected

Ef ekki er stuðst við sam­ræmd próf við inn­rit­un í fram­halds­skóla og ekki er eðli­legt sam­ræmi í náms­mati milli grunn­skóla eru lík­ur til þess að um­sækj­end­ur um skóla­vist í fram­halds­skól­um standi ekki jafn­ir að vígi, í and­stöðu við lög og góða stjórn­sýslu­hætti.

Þetta er meðal þess sem kem­ur fram í lög­fræðiáliti sem lög­manns­stof­an Jur­is vann að beiðni Viðskiptaráðs Íslands.

Sein­ast lögð fyr­ir 2022

Sam­kvæmt um­ræddu lög­fræðiáliti get­ur þessi aðstöðumun­ur sem leiðir af ósam­ræmi í loka­ein­kunn­um úr grunn­skóla haft það í för með sér að nem­end­ur fái í reynd ójafna meðferð við inn­rit­un í fram­halds­skóla. Tekið er fram í álit­inu að ekki sé virkt eft­ir­lit með því að raun­veru­legt sam­ræmi sé í ein­kunna­gjöf á milli ein­stakra grunn­skóla.

Sam­ræmd könn­un­ar­próf hafa ekki verið lögð fyr­ir í grunn­skól­um lands­ins síðan árið 2022 en þar á und­an höfðu próf­in ekki verið nýtt til viðmiðunar við inn­rit­un í fram­halds­skóla um langa hríð. Sam­kvæmt at­hug­un Mennta­mála­stofn­un­ar frá ár­inu 2022 búa 35% nem­enda við það að grunn­skóla­ein­kunn þeirra sé um­tals­vert lægri eða hærri en hefði verið í öðrum skóla.

Einkunnagjöf getur verið mjög mismunandi eftir skólum.
Ein­kunna­gjöf get­ur verið mjög mis­mun­andi eft­ir skól­um. mbl.is/​Karítas

Hvet­ur umboðsmann að hefja rann­sókn

Björn Brynj­úlf­ur Björns­son seg­ir í Dag­mál­um í dag að nú­ver­andi fyr­ir­komu­lag brjóti í bága við jafn­ræðis­regl­una sem sé að finna bæði í stjórn­ar­skránni og í stjórn­sýslu­lög­um enda sé ein­kunna­gjöf mjög mis­mun­andi eft­ir skól­um.

Björn seg­ir fullt til­efni fyr­ir umboðsmann Alþing­is að hefja frum­kvæðis­rann­sókn á mál­inu og í kjöl­farið kalla eft­ir svör­um frá ráðuneyt­inu um hvernig bregðast eigi við efni álits­ins.

Að sögn Björns hef­ur mennta- og barna­málaráðherra ekki fall­ist á það að funda með Viðskiptaráði vegna stöðunn­ar.

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.
Björn Brynj­úlf­ur Björns­son, fram­kvæmda­stjóri Viðskiptaráðs. Morg­un­blaðið/​Hall­ur Már
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert