Hvorki varð tjón á munum né mönnum vegna skriðufalls sem varð í Neskaupstað, eða vegna grjóthruns á Siglufjarðarvegi sem varð nú í kvöld.
Þetta segir Jóhanna Malen Skúladóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.
„Þessi skriða sem féll í Neskaupstað var ótrúlega lítil og við höfum ekki fengið fleiri tilkynningar um skriður í kvöld. Ólafsfjarðarvegur og vegir þar í kring eru þó sérstaklega merktir vegna grjóthruns- og skriðuhættu. Þar þarf fólk að fara varlega,“ segir Jóhanna.
Veðurstofan hefur gefið út viðvörun vegna skriðuhættu og vatnavaxta á norðan- og austanverðu landinu. Mesta úrkoman mun samkvæmt viðvöruninni falla á Tröllaskaga og á Flateyjarskaga.
Jóhanna segir að eins og staðan sé núna sé ekki hætta á því að skriður muni falla í þéttbýli, hún segir þó að viðvarandi skriðuhætta sé til staðar og meta þurfa stöðuna með viðbragðsaðilum í fyrramálið.